Breyting rekstrarleyfis Fiskeldis Austfjarða hf. í Berufirði
Matvælastofnun hefur breytt rekstrarleyfi Fiskeldis Austfjarða hf. til fiskeldis í Berufirði í samræmi við 13. gr. reglugerðar nr. 540/2020 um fiskeldi . Tillaga að breyttu rekstrarleyfi var auglýst á vef stofnunarinnar þann 31. maí 2021 og frestur til að skila inn athugasemdum var til 28. júní 2021.