Kæri lesandi, vissir þú að ...
- Geldingar grísa voru að mestu aflagðar hérlendis árið 2016, bændur nota þess í stað bóluefni gegn galtarbragði, ekki eru gerðar sambærilegar kröfur til samkeppnislanda okkar þar sem bændur og starfsmenn svínabúa gelda grísi.
- Kröfur varðandi aðbúnað og dýravelferð eru mun meiri hérlendis heldur en í þeim löndum sem við erum í samkeppni við um hillupláss.
- Lausaganga gyltna á öllum stigum framleiðslunnar (þ.m.t. í goti) er nú þegar komin í notkun á um 20% íslenskra svínabúa og verður að fullu innleidd á allra næstu árum, engin áform liggja fyrir um lausagöngu í goti í okkar helstu samkeppnislöndum.
- Kröfur um fjarlægðarmörk við íbúðarhús eru langtum meiri hér en í þeim löndum sem við erum í samkeppni við.
- MÓSA (MRSA), sem er meðal algengustu sýkingarvalda í mönnum, er landlæg í svínarækt í mörgum löndum í Evrópu. Þannig mældust mótefni gegn MÓSA í 88% danskra svínabúa árið 2018.
- Árin 2008–2016 voru skráð 7.703 tilfelli MÓSA-sýkinga í Danmörku, þar af voru 918 með uppruna frá svínabúum (MRSA 398).
- MÓSA hefur enn ekki greinst á svínabúum í Íslandi.
- Sökum góðrar heilnæmisstöðu í íslenskri svínarækt getum við einungis flutt inn erfðaefnið frá viðurkenndri kynbótastöð í Noregi, innflutningur frá öðrum löndum er bannaður.
- Sýklalyfjanotkun í íslenskri svínarækt er langtum minni en í samkeppnislöndunum
- Árið 2003 voru um 4.500 gyltur í landinu og framleidd um 6.200 tonn. Nú, 20 árum síðar, eru um 2.900 gyltur í landinu en framleiðsla síðustu 12 mánaða um 6.700 tonn.
- Innflutningur á svínakjöti frá Evrópu hefur á síðustu 15 árum farið úr því að vera nánast enginn yfir í um 2.500 tonn á ári (umreiknað yfir í kjötskrokka).
Það sem svínaræktin leggur áherslu á við gerð nýrra búvörusamninga árið 2026 er m.a. að:
- Jafna leikinn, þ.e. gera sambærilegar kröfur til kollega okkar erlendis varðandi dýravelferð þegar kemur að innflutningi á kjöti, 25. grein laga um velferð dýra heimilar einmitt ráðherra að setja ákvæði sem takmarka eða banna innflutning eða dreifingu dýraafurða sem framleiddar eru í andstöðu við íslensk lög.
- Auka fyrirsjáanleika m.a. með því að minnka óvissu varðandi tollverndina, íslenskur landbúnaður mun aldrei geta þrifist og dafnað án skýrrar langtímastefnu í tollvernd.
- Tryggja bændum aðgengi að lánsfé á kjörum sem landbúnaðurinn getur staðið undir. Einnig að koma aftur á fjárfestingarstyrkjum í greininni.
- Vera virkir þátttakendur í að efla innlenda kornframleiðslu.
- Einfalda regluverkið til að auðvelda endurbætur og frekari uppbyggingu nýrra svínahúsa. Núverandi umgjörð er verulega hamlandi hvað þetta varðar.