Gömul og góð búnaðarþingsmál
Ég sat mitt fyrsta búnaðarþing 2001 og sat síðasta búnaðarþing mitt árið 2015. Aðalfund heildarsamtaka bænda á Íslandi. Mál búnaðarþings þess tíma voru send úr héruðum og endurspegluðu vel bæði staðbundnar áherslur bænda og margháttuð verkefni, á landsvísu, sem þurfti að vekja athygli á til að bæta aðstöðu dreifðra byggða.