Skilaði rúmum 14,3 tonnum af mjólk
Samkvæmt skýrsluhaldi Ráðgjafarmiðstöðvar landbúnaðarins (RML), þá var kýrin Svana frá Flateyjarbúinu í sveitarfélaginu Hornafirði afurðahæst allra kúa á Íslandi 2019. Skilaði hún 14.345 kg afurðum til eigenda sinna og var jafnframt sú eina sem mjólkaði yfir 14 tonn á árinu.