Efstidalur 2
Á bænum Efstadal 2 í Bláskógabyggð er rekið kúabú með mjólkurvinnslu, auk þess sem bændurnir eru með ferðaþjónustu á bænum.
Býli: Efstidalur 2.
Staðsett í sveit: Laugardal í Bláskógabyggð.
Systkinin í Efstadal 2.
Ábúendur: Halla Rós, Björgvin, Sölvi, Kristín I. Gunn, Guðrún Karitas, Árni, Linda Dögg, Héðinn og börn þeirra sem eru samtals 10. Svo gömlu bændurnir, Snæbjörn og Björg, sem búa í sínu koti. Svo eru það hundarnir Meyja og Þula. Kötturinn Grettir og nokkrar hænur og nokkrar kanínur.
Stærð jarðar? Um 500 ha og einnig land sem er óskipt með Efstadal 1.
Ísinn í Efstadal 2.
Gerð bús? Efstidalur 2 er kúabú og ferðaþjónusta.
Lítil mjólkurvinnsla er á bænum ásamt veitingastað, kaffihúsi og hóteli með 15 herbergjum. Framleitt er skyr, Efsti-ostur og ís. Allt okkar kjöt er notað á veitingastaðnum og grænmetið verslað frá bændum í uppsveitinni. Við leggjum mikla áherslu á það að versla í nærsveitinni og veljum alltaf íslenskt ef möguleiki er á því.
Hvernig gengur hefðbundinn vinnudagur fyrir sig á bænum?
Það er alltaf líf og fjör í sveitinni og verkefnin eru mörg dag hvern. Hugsa þarf um dýrin, framleiða mat og halda öllu hreinu. Það má ekki gleyma að nefna hestana sem eru ekki síður stór partur af okkar daglega lífi. Fjölskyldan er dugleg að fara á hestbak og við erum með litla hestaleigu þar sem ferðamenn geta komið og farið í reiðtúr. Hægt er að koma til okkar og fara á hestbak, leika á leiksvæðinu og skoða dýrin, snæða hádegis- eða kvöldverð og toppa daginn með heimagerðum ís.
Skemmtilegustu/leiðinlegustu bústörfin? Skemmtilegast er að ríða út og njóta náttúrunnar en leiðinlegast er að reyta arfa, moka skít og drepa njólann sem Danakonungur færði okkur að gjöf.
Hvernig sjáið þið búskapinn fyrir ykkur á jörðinni eftir fimm ár? Við stefnum á að halda áfram hefðbundnum búskap og ferðaþjónustu og reyna alltaf að gera pínubetur í dag en í gær.
Hvar teljið þið að helstu tækifærin séu í framleiðslu íslenskra búvara? Við sjáum fullt af tækifærum í framleiðslu og nýsköpun á okkar vörum og má þá t.d. nefna ostagerð.
Hvað er alltaf til í ísskápnum? Í ísskápnum okkar er alltaf til mjólk.
Hver er vinsælasti maturinn á heimilinu? Efstadalshamborgarinn er alltaf vinsælastur, flestir velja Hverinn en svo er það líka mömmu skyrborgarinn sem skorar hátt hjá fjölskyldunni.
Eftirminnilegasta atvikið við bústörfin? Þegar Árni bóndi var nýbúinn að fjárfesta í glænýjum Samsung snjallsíma og fór montinn í fjósið að mjólka. Hann var lítið kátur þegar einni beljunni tókst að skíta í vasann þar sem nýi síminn var. Við eigum mjög mörg eftirminnilega atvik úr bústörfunum sem erfitt er að velja úr. Efstadalsfjölskyldan biður að heilsa og hlakkar til að taka á móti gestum í sumar þar sem við erum búin að vera frekar einangruð í tvö ár út af dálitlu.