Hörgsland 2
Við kynntumst á Hvanneyri 1982 og útskrifuðumst 1983. Anna er frá Holti í Flóa og Sigurður héðan frá Hörgslandi.
Þegar við komum inn í búskapinn 1984 bjuggu hér Róshildur og Jakob, amma og afi Sigurðar, ásamt Ólafíu og Kristni, foreldrum hans. Við tókum við öllu búinu í kringum 2000. Fluttum í okkar íbúðarhús og settum haugkjallara í fjárhúsið og hlöðuna 1993 og gátum þá haft allt féð heima, vorum að gefa í fjórum húsum áður.
Býli: Hörgsland 2.
Staðsett í sveit: Á Austur- Síðu í Skaftárhreppi í Vestur-Skaftafellssýslu.
Ábúendur: Anna Harðardóttir og Sigurður Kristinsson.
Fjölskyldustærð (og gæludýr):
Við eigum tvær dætur, Elínu, 31 árs og Láru, 27 ára, þær búa í Reykjavík, og einn son, Atla 23 ára, sem býr hjá okkur og vinnur á Klaustri með rafvirkjanum og tekur einnig þátt í búskapnum. Svo eru á bænum smalahundarnir Píla, Vala og Hössi.
Stærð jarðar: Nær suður í sjó og inn að hálendislínu ríkisins, ekki vitað hve stór í ha.
Gerð bús: Sauðfjárbú.
Fjöldi búfjár og tegundir:
501 kind og 21 hross.
Hvernig gengur hefðbundinn vinnudagur fyrir sig á bænum?
Núna er fengitímanum að ljúka, það eru gegningar tvisvar á dag, síðan er snoðrúningur, sauðburður, flagvinna og áburðardreifing, heyskapur, keyra út skít, smalamennskur, fjárrag og haustrúningur. Svo þarf að hreyfa hrossin en þau eru notuð við smalamennskur og í skemmtiferðir og svo er eitt og eitt selt.
Skemmtilegustu/leiðinlegustu bústörfin? Allt skemmtilegt þegar vel gengur og viðrar vel, en þrif eftir sauðburð og að tjasla saman gömlum girðingum njóta minnstu vinsælda.
Hvernig sjáið þið búskapinn fyrir ykkur á jörðinni eftir fimm ár? Sjáum ekki að það verði neinar stórbreytingar en er ekki markmiðið að gera betur?
Hvaða skoðun hafið þið á félagsmálum bænda? Mætti sjálfsagt vera almennari þátttaka.
Hvernig mun íslenskum landbúnaði vegna í framtíðinni? Okkur finnst allar forsendur fyrir því að hann ætti að geta gengið vel, tölum nú ekki um ef reynt væri að koma afurðunum í alla þessa túrista sem flæða yfir landið. Svo vonum við að næsti búvörusamningur verði til bóta fyrir bændur en verði ekki greiðslur til þeirra sem hafa verið að kaupa jarðir út um allt land og eru kannski orðnar í eigu bankanna. Þetta fólk er ekki að lifa á landbúnaði.
Hvar teljið þið að helstu tækifærin séu í útflutningi íslenskra búvara? Hreinleiki og gæði búvara fyrst og fremst og nota það til markaðssetningar á lúxusvörum.
Hvað er alltaf til í ísskápnum?
Mjólk, skyr, ostur, egg og álegg, lambakjötið í frystinum.
Hver er vinsælasti maturinn á heimilinu? Grillað lamb, linkind (er í ofninum í 3–4 tíma) og heimareykta hangikjötið.
Eftirminnilegasta atvikið við bústörfin? Það er án efa að upplifa svartamyrkur um hábjartan dag í Grímsvatnagosinu sem byrjaði 20. maí 2011. Heyra lambféð jarma einhvers staðar úti í myrkrinu og geta ekkert gert. Urðum að keyra allt fé heim og lemba – taka ærnar úr sem urðu blindar (í þrjár vikur) eftir að askan „ pússaði“ sjónhimnuna í þeim og gefa meira hey út um öll tún þar sem það var nánast haglaust. Sem betur fer eru vatnsuppsprettur í túninu því allt vatn í lækjum og ám varð ódrekkandi.