Litli Háls
Jörðin Litli Háls var á árum áður í eigu afa Hannesar Gísla Ingólfssonar, lagðist síðar í eyði en var nytjuð af Stóra Hálsi. Hannes býr nú á Litla Hálsi með Grétu Björg Erlendsdóttur.
„Við hjónin (borgarbörnin) keypum jörðina í ágúst 2003 en ekkert íbúðarhús var á jörðinni þannig að við byggðum okkur heilsárs íbúðarhús árið 2006 og ætluðum að vera með annan fótinn hér á Litla Hálsi og hinn í Kópavogi. En ekki leið á löngu að við fluttum alveg í sveitina.
Byrjuðum með hesta og nokkrar hænur. Síðan komu nokkrar rollur, höfum ræktað upp ný tún og gert reiðvegi inn á landinu.
Hér á Litla Hálsi er yndislegt að vera og barnabörnunum finnst gott að koma og taka þátt í bústörfunum,“ segir Gréta Björg.
Býli: Bærinn okkar heitir Litli Háls.
Staðsett í sveit: Bærinn okkar er norðanmegin Ingólfsfjalls og nær upp í Inghól í Grímsnes- og Grafningshreppi.
Ábúendur: Hannes Gísli Ingólfsson og Gréta Björg Erlendsdóttir.
Fjölskyldustærð (og gæludýra): Erum tvö í kotinu með einn kött, hana Essasú 10 ára, og tvo ástralska fjárhunda, Bláaloga (Loga) 9 ára og Bjarnarkló (Kló)12 ára.
Stærð jarðar? Jörðin er nálægt 700 hektarar.
Gerð bús? Hross og ferðaþjónusta.
Fjöldi búfjár og tegundir? Um 40 hestar, nokkrar kindur og íslenskar landnámshænur.
Hvernig gengur hefðbundinn vinnudagur fyrir sig á bænum? Hefðbundinn vinnudagur er að fóðra dýrin og annað eftir þörfum.
Skemmtilegustu/leiðinlegustu bústörfin? Skemmtilegast er að taka á móti ungviðum sem fæðast en leiðinlegast er að reyna að heyja í vætutíð.
Hvernig sjáið þið búskapinn fyrir ykkur á jörðinni eftir fimm ár? Hann verður með svipuðu sniði næstu árin.
Hvaða skoðun hafið þið á félagsmálum bænda? Við erum bara með sýnishorn af búskap þannig að við látum stærri og fróðari bændur um félagsmálin.
Hvernig mun íslenskum landbúnaði vegna í framtíðinni? Ekki gott að segja en vonandi verður bjartara yfir landbúnaðinum.
Hvar teljið þið að helstu tækifærin séu í útflutningi íslenskra búvara? Íslenska lambakjötið, ef rétt er á málum haldið.
Hvað er alltaf til í ísskápnum? Í ísskápnum finnst alltaf smjör, ostur, rabarbarasulta og auðvitað egg.
Hver er vinsælasti maturinn á heimilinu? Lambakjötið frá Litla Hálsi.
Eftirminnilegasta atvikið við bústörfin? Við fengum heimalning og tíkin Kló tók hann undir sinn verndarvæng og hafði hann í bælinu hjá sér.