Deildarstjóraskipti í ferðamáladeild
Dr. Georgette Leah Burns tók við starfi deildarstjóra ferðamáladeildar Háskólans á Hólum 1. ágúst síðast liðinn. Hún er menntaður mannfræðingur og í ferðamálum auk þess sem hún býr yfir reynslu af kennslu og rannsóknum.
Undanfarið ár hefur Leah, sem er Ástrali að þjóðerni, búið á Hvammstanga ásamt fjölskyldu sinni. Þar hefur hún stundað rannsóknir við Selasetur Íslands, auk þess að kenna námskeið við Háskólann á Hólum.
Leah tekur við af Dr. Guðrúnu Helgadóttur.