Hundar, hestar, kindur og hamstrar
Aníta býr á Grenivík með mömmu sinni og pabba. Hún er eldhress íþróttastelpa og mikill dýravinur.
Nafn: Aníta Ingvarsdóttir.
Aldur: 10 ára.
Stjörnumerki: Naut.
Búseta: Grenivík.
Skóli: Grenivíkurskóli.
Hvað finnst þér skemmtilegast í skólanum? Íþróttir, myndmennt og handmennt.
Hvert er uppáhaldsdýrið þitt? Hundar, hestar, kindur og hamstrar.
Uppáhaldsmatur: Tortilla, pasta og píta.
Uppáhaldshljómsveit: Engin sérstök en hef gaman af alls konar tónlist.
Uppáhaldskvikmynd: Home alone og Sing.
Fyrsta minning þín? Ég var pínulítil og var að reyna að hoppa en datt eiginlega alltaf á rassinn.
Æfir þú íþróttir eða spilarðu á hljóðfæri? Ég æfi fótbolta með Magna og KA og svo spila ég á píanó.
Hvað ætlar þú að verða þegar þú verður stór? Atvinnukona í fótbolta, vinna í búð og í leikskóla.
Hvað er það klikkaðasta sem þú hefur gert? Þegar ég reyndi að taka tvöfalt heljarstökk en lenti á höfðinu.
Hvað ætlarðu að gera skemmtilegt á nýju ári? Leika mér, passa litlu frænku, ferðast, keppa í fótbolta, fara á hestbak, fara á snjóbretti og vélsleða.
Næst » Aníta skorar á Sigurð Einar Þorkelsson í Höfða í Grýtubakkahreppi að svara næst.