Ástríða að baki matarhandverki
Helgina 17.-18. desember fer fram Matarmarkaður í Hörpu í Reykjavík.
Markaðurinn á rætur sínar að rekja til ársins 2011 og er hugarfóstur Hlédísar Sveinsdóttur og Eirnýjar Sigurðardóttur. Þar koma saman smáframleiðendur og matarhandverksfólk sem kynnir vörur sínar fyrir gestum og gangandi. „Á þessum árum hafa smáframleiðendur sótt í sig veðrið. Mikil vöruþróun hefur átt sér stað og fjölmargir nýir framleiðendur hafa bæst við matarmarkaðsfjölskylduna,“ segir Hlédís.
Hún segir einstaka stemningu myndast á mörkuðum. „Þeir skipta miklu máli fyrir framleiðendur, ekki bara sölulega séð heldur að fá að kynna sig og sína framleiðslu. Ná þessu samtali við kúnnann og geta sagt frá því sem liggur að baki vörunni. Myndað traust. Traust er mikilvægt þegar kemur að matvælaframleiðslu og á þessum mörkuðum hefur þú marga tugi framleiðenda sem eru tilbúnir að standa stolt með sínum vörum, enda er mikil vinna og mikil ástríða á bak við þetta matarhandverk.“
Hún nefnir að algengt sé að tvær til þrjár kynslóðir standi að baki framleiðslu eða sem koma og hjálpa til á mörkuðunum. „Í þessu hraða samfélagi sem við lifum í er fallegt að sjá ömmur og afa, mömmur og pabba leiðbeina börnum að setja upp básinn og ganga frá bás og sinna því sem þarf þess á milli. Það er dýrmæt reynsla sem á eftir að fylgja þessum börnum áfram út í lífið. Önnur skemmtileg birtingarmynd er samstarf söluaðila. Framleiðendur hittast, bera saman bækur og oft verður spennandi samstarf út úr því,“ segir Hlédís.
Matarmarkaður Íslands verður opinn frá kl. 11 til 17 báða dagana. Aðgangur er ókeypis.