Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 4 ára.
Eva var á fullu í undirbúningi að koma Eldstæðinu í stand þegar ljósmyndari kom í heimsókn. Hér er hún í málningarvinnu í tilvonandi skrifstofurými þar sem matarfrumkvöðlarnir geta sinnt pappírsvinnunni.
Eva var á fullu í undirbúningi að koma Eldstæðinu í stand þegar ljósmyndari kom í heimsókn. Hér er hún í málningarvinnu í tilvonandi skrifstofurými þar sem matarfrumkvöðlarnir geta sinnt pappírsvinnunni.
Mynd / smh
Líf og starf 29. maí 2020

Deilieldhúsið Eldstæðið opnar í sumar

Höfundur: smh
Á Facebook-síðunni Eldstæðið sameinast matarfrumkvöðlar og smáframleiðendur sem hafa áhuga á að vinna saman undir einu þaki að verkefnum sínum. Stofnandi hópsins er Eva Michelsen, sem hefur átt sér þann draum að reka slíkt deilieldhús undir merkjum Eldstæðisins þar sem félagar hennar í hópunum geta þróað hugmyndir sínar frekar. Hún er búin að fá húsnæði undir starfsemina og vonast til að geta opnað í sumar.
 
„Það væri draumur að opna í júní en við erum enn að standsetja allt saman í húsnæðinu og svo erum við að vinna með heilbrigðiseftirlitinu, sem fundar bara einu sinni í mánuði fyrir Kópavog, Garðabæ og Hafnarfjörð. Svo mögulega erum við að horfa á júlí eða ágústmánuð, sjáum hversu öflug við erum og hvernig gengur með starfsleyfið.“
 
Skortur verið á starfsaðstöðu
 
Að sögn Evu hefur verið skortur á slíkri aðstöðu undanfarin misseri enda hefur verið nokkur gerjun í þessum geira. „Ég hef nokkuð stöðugt og reglulega fengið fyrirspurnir síðustu tvö árin meðan ég hef verið að „djöflast“ í þessu – eins og einn orðaði svo skemmtilega um þetta brölt hjá mér um daginn. Við erum með rúmlega 100 manns í Facebook-hópnum sem ég stofnaði fyrir um tveimur árum svo það er að minnsta kosti áhugi á að fylgjast með. Það geta allir látið vita af áhuga sínum á því að fá aðgang að aðstöðunni, en formlegt umsóknarferli er ekki hafið. 
 
Ég er þegar með einstaklinga og smærri rekstraraðila á biðlista, svo verður áhugavert að sjá hvort hafi orðið breyting þar á, eða hvort verði hreinlega enn meiri eftirspurn. Markmiðið er að hafa að minnsta kosti þrjár til fjórar virkar vinnustöðvar í einu – og húsnæðið aðgengilegt allan sólarhringinn. Svo það ætti að vera hægt að þjónusta að lágmarki 15–20 einstaklinga eða rekstraraðila hverju sinni. Þetta fer auðvitað eftir umfangi hvers og eins, sumir eru að framleiða í eitt skipti á ári og aðrir fjögur – og þurfa bara lager þess á milli. Aðrir eru mánaðarlega, vikulega, daglega og svo framvegis. Sumir þurfa eingöngu undirbúningsaðstöðu, aðrir framleiðslu og eldun. Þetta er auðvitað alveg splunkunýtt og af nokkuð stærri skala en tilraunaeldhúsin sem til eru svo þetta er ágætis lærdómskúrfa líka. Við verðum einnig með skrifstofuaðstöðu svo það verður hægt að sinna pappírsvinnunni sem fylgir og getur verið mikill kostur. 
Það er margt fleira í bígerð varðandi aðstöðuna, þjónustuna og fríðindi sem frumkvöðlar njóta með því að vera með aðstöðu hjá okkur.“ 
 
Horft inn í vinnslurýmið, stór kælir er í bakgrunni en í húsnæðinu var áður matvælavinnsla.
 
Deilieldhúsið rekið undir Eldstæðinu
 
Að sögn Evu verður verkefnið rekið undir rekstrarfélaginu Eldstæðinu ehf. en eigendur þess eru hún sjálf og maður hennar. „Við fjármögnum þetta af eigin fé, en ég er með mjög góða aðila í kringum mig sem eru ómetanlegir í þessu ferli, þar á meðal góð vinkona sem hefur stutt mig gegnum þetta ferli. Fjölskyldan er auðvitað að hjálpa til eins og þau geta og vinir bíða eftir að komast að og hjálpa til,“ segir hún.
 
 „Það hefur sannarlega verið að mörgu að huga í þessu ferli; að teikna upp aðstöðuna og finna hvernig þetta allt gengur upp saman með þeim hætti sem við leggjum upp með. Það er auðvitað þetta hefðbundna; mála og gera huggulegt en svo er að ákveða viðeigandi tækjakost, uppsetning á þurrlager, kælum, frystum og svo framvegis. Allt með það í huga að tryggja fæðuöryggi, hreinlæti og fleira sem ber að hafa í huga þegar kemur að matvælavinnslu. Fyrirtækin sem ég hef verið í samskiptum við hafa verið alveg frábær og taka vel í þetta klikkaða framtak. Þessu fylgir einnig að setja upp þjónustupakkana/verðskrá og hvað er innifalið í hverjum pakka. Við viljum geta aðstoðað stóra sem smáa og eftir tímasetningu, margir eru að prufa sig áfram meðfram vinnu og komast því bara á kvöldin og um helgar. Það verður því eitthvað á borð við grunnpakka, frumkvöðlapakka, helgarpakka, nátthrafnapakka og stóra pakkann. Við erum nokkurn vegin komin með þetta á hreint en viljum aðeins fínpússa áður en vefurinn fer í loftið með öllum upplýsingum.“
 
Flestir ættu að geta nýtt sér aðstöðuna
 
„Ég reikna með að ég sjái að mestu um reksturinn til að byrja með og ef allt gengur upp þá get ég vonandi ráðið fólk til starfa. Ég er svo heppin að búa að góðri reynslu úr Sjávarklasanum úti á Granda ásamt Lífsgæðasetri St. Jó í Hafnarfirði en bæði þessi húsnæði byggja á deilihagkerfinu og uppbyggingu á samfélagi kringum ákveðnar starfsgreinar,“ segir Eva. Hún bætir við að hún telji að flestir matarfrumkvöðlar ættu að geta nýtt sér þá aðstöðu sem verður í boði, en nauðsynlegt sé að passa upp á ofnæmisvalda.
 
 „Gjaldskráin er alveg að verða klár, viljum leggjast aðeins betur yfir hana áður en hún er birt opinberlega,“ segir Eva. 
 
Áhugasamir um framvindu verkefnisins geta fylgst með á Facebook-síðu Eldstæðisins, https://www.facebook.com/eldstaedid. 
Stjörnuspá vikunnar
Líf og starf 15. júlí 2024

Stjörnuspá vikunnar

Vatnsberinn er eitthvað órór þessa dagana enda einhver stífla á verkefnum í krin...

Gerum okkur dagamun
Líf og starf 12. júlí 2024

Gerum okkur dagamun

Nú er ekki seinna vænna en að fara að leggja línurnar fyrir sumarið og með það t...

Bænder
Líf og starf 12. júlí 2024

Bænder

Sumir fara á Tinder. Aðrir hafa ekki tíma í slíkt vegna anna í búskapnum. Hér, k...

Vættafundur á Eyjabökkum
Líf og starf 10. júlí 2024

Vættafundur á Eyjabökkum

Orðsins list kemur að þessu sinni frá Oddbjörgu Sigfúsdóttur.

Sumarkveðja
Líf og starf 10. júlí 2024

Sumarkveðja

Nú þegar lífið kviknar með sumrinu og golan leikur við kinn, skulum við gleðjast...

Himbrimi
Líf og starf 9. júlí 2024

Himbrimi

Himbrimi er nokkuð stór vatnafugl og er einn af einkennisfuglum íslenskra heiðav...

Sumarsveiflan 2024
Líf og starf 8. júlí 2024

Sumarsveiflan 2024

Áherslur tískunnar fara nokkuð vítt og breitt þetta árið en nú þegar er farið að...

Dugur og elja ofar öllu
Líf og starf 8. júlí 2024

Dugur og elja ofar öllu

Eitt þeirra mætu kvenfélaga sem hér á landi sitja er Kvenfélag Hringsins sem hef...