BMX brós sýna listir sínar við mikla aðdáun viðstaddra.
BMX brós sýna listir sínar við mikla aðdáun viðstaddra.
Mynd / Rangárþing ytra
Líf og starf 16. ágúst 2024

Gerum okkur dagamun

Höfundur: Sigrún Pétursdóttir og Magnús Hlynur Hreiðarsson

Nú eru síðustu hátíðir sumarsins að líta dagsins ljós og með það til hliðsjónar er hér örlítið yfirlit yfir nokkrar þær skemmtanir og húllumhæ sem má finna hérlendis.

Hér til hliðar má sjá brot af því helsta sem er á döfinni í ágústmánuði, fyrir þá sem vilja gera sér dagamun, en uppákomur næstu vikna verða á dagskrá í næstu blöðum. Hér er um auðugan garð að gresja og næsta víst að ekki komist allt á lista.

Fyrir þá sem vilja koma á framfæri hvers konar skemmtunum, opnunum eða uppákomum, má hafa samband í gegnum netfangið sigrunpeturs@bondi.is og við reynum okkar besta til að koma því að.

Töðugjöld í þrjátíu ár

Þrjátíu ára afmæli Töðugjaldanna á Hellu fer fram þessa dagana í Rangárþingi ytra. Fjölskylduhátíðin hófst 11. ágúst og stendur til 18. ágúst.

Í tilefni af hátíðarhöldum hafa fjölmargir íbúar skreytt íbúðarhúsin sín og garða og fegrað nærumhverfi sitt með þemalitum. Þannig má sjá gular skreytingar austan Hellu, grænar og appelsínugular vestan Hellu og rauður litur er allsráðandi í Þykkvabæ.

Einn af hápunktum töðugjaldanna er ókeypis morgunmatur sem borinn er fram í íþróttahúsinu á Hellu laugardaginn 17. ágúst frá kl. 10–12 en þar mun Harmonikkufélag Suðurlands m.a. spila og umhverfisverðlaun og menningarverðlaun Rangárþings ytra verða afhent.

Þennan sama dag verður líka bílasýning á árbakkanum á Hellu og vegleg fjölskyldudagskrá í íþróttahúsinu. Að kvöldi 17. ágúst verður svo glæsileg kvöldvaka við íþróttavöllinn á Hellu sem enginn ætti að missa af.

Danskir dagar í Stykkishólmi einnig þrítugir

Nú eru þrjátíu ár liðin síðan Danskir dagar voru haldnir í fyrsta sinn en þessi bæjarhátíð hefur verið haldin allt frá árinu 1994.

Hátíðin dregur nafn sitt af því að bærinn þótti svo danskur að Hólmarar voru sagðir tala dönsku á sunnudögum. Var hún fyrst haldin á 50 ára afmæli lýðveldisins og segir sagan að Ólafur H. Sverrisson, þáverandi bæjarstjóri, hafi tekið fram í setningarræðu að samskipti Dana og Íslendinga hefðu ætíð verið allnokkur, ekki síst í Stykkishólmi þar sem danskir menn og konur hefðu verið áberandi í bæjarlífinu.

Var Stykkishólmur miðstöð verslunar á Vesturlandi á meðan Danir réðu hér lofum og lögum.

Má nærri geta að mikið verður um að vera dagana 15.–18. ágúst, líf og fjör í hvívetna. Til dæmis mætir Jörgen Olsen á staðinn, en hann er annar Olsen bræðra sem unnu Eurovision-keppnina eftirminnilega með laginu „Fly on the Wings of Love“ árið 2000. Þannig nú er um að gera að mæta á svæðið og njóta tilverunnar.

Ágústmánuður

Þriðja helgin, 16.–18. ágúst
Fræknir kappar í fyrra.
Mynd / Hjördís Pálsdóttir

Dagana 11.–18. ágúst fer fram hátíðin Töðugjöld – Bæjarhátíð á Hellu á Rangárvöllum sem býður gestum sínum 13–16 ára upp á að taka þátt í axarkasti og bogfimi, sýningu BMX brós, ljúfa tóna frá Harmonikkufélagi Suðurlands sem þenur nikkurnar, hnallþórukeppni, legóbyggingarkeppni, kvöldvökur, tónleika og margt, margt fleira. Nánari upplýsingar má finna í Töðugjaldabæklingnum, en hlekkur á hann er á Facebook-síðu Töðugjalda. Á hátíðin 30 ára afmæli í ár og því mikið um að vera.

15.–18. ágúst fer bæjarhátíð Hveragerðis, Blómstrandi dagar,
fram, en um ræðir fjölskylduhátíð af besta tagi. Tónleikar, markaðir, sýningar, leikir, brekkusöngur, tívolí, flugeldasýning og fjör úti um allan bæ.

Sveitasæla í Skagafirði, landbúnaðarsýning og bændahátíð verður haldin á Sauðárkróki þann 19. ágúst í Reiðhöllinni Svaðastöðum. Mikið verður um að vera, allt frá hoppuköstulum, hrútadómum og kálfasýningum til véla- og fyrirtækjasýninga.

Bæjarhátíðin Fjölskyldudagar í Vogum Vatnsleysuströnd, fer fram 15.–18. ágúst og boðið upp á hina ýmsu skemmtan á borð við hamborgaragrill, bubblubolta, tónleika, varðeld, flugeldasýningu og margt fleira.

Útsæðið, Bæjarhátíð Eskifjarðar, verður haldin dagana 15.– 18. ágúst og fá gestir að njóta ýmissa skemmtana og samveru. Kvöldvaka, flugeldasýning o.fl.

Dagana 15.–18. ágúst fer bæjarhátíðin Reykhóladagar fram, en í fjölbreyttri dagskrá má finna eitthvað við allra hæfi. Sirkus Íslands kemur fram auk þess að snúa blöðrur eftir sýninguna. Kandíflossvél verður í gangi, svo og krapvél, pylsur grillaðar, teymt verður undir börnum, andlitsmálning og froðudiskó. Stiklur Ómars Ragnarssonar verða sýndar undir pönnukökuáti ef fólk vill kaupa gómsætar kökurnar, kántrítónleikar verða í gangi, sundlaugarpartí unglinga í Grettislaug, súpa í heimahúsum, kassabílarallí, karaókí fyrir 13–17 ára, dráttarvélafimi, þarabolti og bjórhlaup auk þess sem Herbert Guðmunds og sonur hans, Guðmundur Herberts, trylla lýðinn á föstudagskvöldinu.

Þessir feðgar eru alltaf í rokna stuði. Mynd / Aðsend

Ein elsta bæjarhátíð landsins, Danskir dagar í Stykkishólmi, er 30 ára nú dagana 15.–18. ágúst og má nærri geta að gestir eigi von á húllumhæi í tilefni afmælisins. Stuðlabandið spilar, keppt verður í bjór / freyðivínshlaupi, froðurennibraut í hótelbrekkunni í boði Fosshótel (börn á ábyrgð forráðamanna), veltibíll og tívolí eru á staðnum auk flugeldasýningar svo fátt eitt sé nefnt ... og fyrir Eurovision-aðdáendur má ekki gleyma að segja frá því að Jörgen Olsen, stórsöngvarinn og Eurovision-sigurvegarinn mætir galvaskur á svæðið.

Hvalfjarðardagarnir verða haldnir 16.–18. ágúst, fjölbreytt og skemmtileg dagskrá verður í boði fyrir alla fjölskylduna.

Fjórða helgin, 23.–25. ágúst

Bæjarhátíð á Seltjarnarnesi verður haldin sunnudaginn 25 ágúst. Fjölbreytt dagskrá gleður gesti, m.a. verður opið í vitann, klifurmeistara á borð við Spiderman bregður mögulega fyrir, lífríkið við Gróttu rannsakað, vöfflukaffi og pylsur verða á staðnum svo og ljúfir hamonikkutónar.

Grímsævintýri í Borg fer fram þann 24. ágúst á milli kl. 13-16.
Tombóla í gangi - ekkert núll og einungis 500kr. miðinn. Klifurveggur, blúndukaffi, markaður, Sirkus Ananas, andlitsmálun og margt fleira mun gleðja gesti.

Menningarnótt í Reykjavík. Stærsta afmælis- og borgarhátíð Reykjavíkur verður haldin laugardaginn 24. ágúst 2024. Segja má að hátíðin sé hápunktur sumarsins þar sem skemmtilegir viðburðir lita mannlífið í miðborginni frá morgni til kvölds fyrir alla þá sem vilja taka þátt í hátíðinni og skemmta sér. Það er orðin hefð hjá mörgum fjölskyldum og vinahópum að mæla sér mót á menningarnótt og eiga skemmtilegan dag saman. Tónleikar, skemmtanir og flugeldasýning.

Það er alltaf stuð á menningarnótt. Mynd / Reykjavíkurborg

Gerum okkur dagamun
Líf og starf 16. ágúst 2024

Gerum okkur dagamun

Nú eru síðustu hátíðir sumarsins að líta dagsins ljós og með það til hliðsjónar ...

Bændamarkaður á Grund á Jökuldal
Líf og starf 15. ágúst 2024

Bændamarkaður á Grund á Jökuldal

Í sumar hefur bændamarkaður verið rekinn á Grund á Jökuldal við Stuðlagil, fjöls...

Úr sarpi Bændablaðsins: Íslenskir garðar skipta máli
Líf og starf 12. ágúst 2024

Úr sarpi Bændablaðsins: Íslenskir garðar skipta máli

Garðrækt hófst ekki á Íslandi fyrr en um miðja 18. öldina. Ein elsta frásögn af ...

Óðinshani
Líf og starf 9. ágúst 2024

Óðinshani

Óðinshani er fremur smávaxinn sundfugl og er einn af tveimur tegundum sundhana s...

Bændabýlin þekku
Líf og starf 7. ágúst 2024

Bændabýlin þekku

Orðsins list kemur að þessu sinni frá Steingrími Thorsteinssyni.

Gerum okkur dagamun
Líf og starf 6. ágúst 2024

Gerum okkur dagamun

Nú er ekki seinna vænna en að fara að leggja línurnar fyrir sumarið og með það t...

Gerum okkur dagamun
Líf og starf 30. júlí 2024

Gerum okkur dagamun

Nú er ekki seinna vænna en að fara að leggja línurnar fyrir sumarið og með það t...

Saga Gunnarsholts á Rangárvöllum
Líf og starf 30. júlí 2024

Saga Gunnarsholts á Rangárvöllum

Bókaforlagið Sæmundur hefur nýverið gefið út bók Sveins Runólfssonar, fyrrverand...