Konur þurfa líka að stýra fjármagninu
Í þriðja þætti Kvenna í nýsköpun spjallar Alma Dóra við Jenný Ruth Hrafnsdóttur, meðstofnanda Crowberry Capital.
Crowberry er íslenskur vísissjóður sem fjárfestir í tæknidrifnum nýsköpunarfyrirtækjum sem eru snemma á sínum lífsferli. Jenný sagði frá sínu starfi hjá Crowberry, vegferðinni sem leiddi hana þangað og sínum hugleiðingum um nýsköpunarumhverfið á Íslandi.