Starfsemin vex hjá Þekkingarsetrinu á Blönduósi
Höfundur: Margrét Þóra Þórsdóttir
Þekkingarsetrið á Blönduósi hefur ráðið Katrínu Sif Rúnarsdóttur til starfa í Kvennaskólanum til eins árs. Starfið er annað af tveimur stöðugildum sem Þekkingarsetrið fékk úthlutað frá Norðvesturnefndinni nú í vetur.
Starfsemi Þekkingarsetursins hefur vaxið og dafnað síðan það var stofnað fyrir fjórum árum. Markmið setursins er m.a. að vera miðstöð rannsókna- og þróunarverkefna á sviði textíls, strandmenningar og laxfiska, og stuðla að aukinni fjölbreytni atvinnulífs með fræðslustarfi, eflingu háskólamenntunar, vísindarannsóknum og nýsköpunarstarfi.
50 listamenn hafa staðfest komu sína
Á undanförnum árum hefur áhersla verið lögð á eflingu náms á sviði textíls og uppbyggingar textíllistamiðstöðvarinnar í Kvennaskólanum í samstarfi við Textílsetur Íslands og Heimilisiðnaðarsafnið á Blönduósi. Þessi vinna hefur svo sannarlega skilað sér og hefur starfsemin aukist ár frá ári. Nemendur Listaháskóla Íslands og danskir textílnemendur frá Kaupmannahöfn koma nú reglulega í starfsnám og nýta aðstöðu og fræðslu á staðnum. Aðsókn í listamiðstöðina, sem er rekin af Textílsetri Íslands, hefur aukist stöðugt og nú þegar hafa 50 listamenn frá öllum heimshornum staðfest komu sína árið 2016. Auk þess hefur verið unnin úttekt á vefstofu og vefstólum í Kvennaskólanum og vinna við endurbætur á aðstöðunni hafin.
Hlutverk nýs starfsmanns verður m.a. að vinna almenn skrifstofustörf, aðstoða textíllistamenn sem og nemendur sem nýta sér námsver og fjarprófsaðstöðu í Kvennaskólanum. Einnig mun Katrín, sem er ferðamálafræðingur að mennt, veita upplýsingar til ferðamanna og annarra gesta sem heimsækja Kvennaskólann en þar eru einnig staðsett Vatnsdæla á Refli og Minjastofur á vegum Vina Kvennaskólans. Frá þessu er sagt á vefnum huni.is.