Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 3 ára.
Gunnar Þorgeirsson, formaður Bændasamtaka Íslands.
Gunnar Þorgeirsson, formaður Bændasamtaka Íslands.
Fréttir 11. mars 2021

„Hugnast ekki óbreytt ástand“

Höfundur: Vilmundur Hansen

Búnaðarþing 2021 verður hald­ið á Hótel Sögu dagana 22. og 23. mars að öllu óbreyttu. Gunnar Þorgeirsson, formaður Bændasamtaka Íslands, segir að helsta málið á dagskrá séu breytingar á félagskerfi landbúnaðarins og að efla stöðu Bændasamtakanna sem hagsmunasamtök fyrir alla bændur á landinu.

„Megináherslan á þinginu eru félagskerfisbreytingar þar sem stjórn Bændasamtaka Íslands mun leggja fram tillögu að tvenns konar sviðsmyndum. Annars vegar óbreyttu fyrirkomulagi, sem okkur hugnast illa, og hins vegar fyrirkomulagi þar sem búgreinafélögin renna undir Bændasamtökin og starfsemi því tengdu. Slík sameining gerir okkur kleift að ná fram áherslubreytingum í starfsemi samtakanna og um leið verulegri hagræðingu í tengslum við hagsmunagæslu fyrir bændur í landinu.“

Samþætting vinnu

Gunnar segir að við það að búgreinafélögin renni undir Bændasamtökin þýði að megin­áherslur verði lagðar af stjórn samtakanna með stuðningi búgreinadeilda.

„Gert er ráð fyrir að starfs­menn búgreinafélaganna muni með breytingunni færast til Bændasamtakanna og búgreina­deildirnar yrðu þannig til stuðnings fyrir mál sem varða hverja búgrein fyrir sig.

Á sama tíma er hægt að samþætta vinnuna þegar kemur að sameiginlegum málum þannig að það séu ekki margir að vinna sömu vinnuna hver í sínu horni og á það til dæmis við vinnu við gerð athugasemda við lagafrumvörp, í sambandi við umhverfismál, matvælamerkingar og önnur mikilvæg verkefni. Með þessu tel ég að við munum efla starfsemi Bændasamtakanna og gera vinnu innan þeirra mun skilvirkari.“

Hugnast ekki óbreytt ástand

Gunnar segir að honum hugnist það illa ef breytingarnar á félagskerfinu verða ekki samþykktar og að þá verði bændur að fara að gera upp við sig hver tilgangur Bændasamtakanna sé og hvert sé hlutverk þeirra í framtíðinni.

„Eitt af því sem þarf að skoða, verði ástandið óbreytt, er hvernig verkaskipting á að vera milli Bændasamtakanna og búgreinafélaganna. Það er gersamlega ótækt til lengdar að það séu allir að grauta í sama pottinum.“

Að sögn Gunnars hafði stjórn BÍ talsverðar áhyggjur af því hversu margir mundu skrá sig í samtökin eftir að tekið var upp veltutengt félagsgjald en ánægjulegt að bændur sjái sér hag í að tilheyra samtökum bænda. „Þrátt fyrir þær áhyggjur eru félagar í samtökunum svipað margir og þeir voru, þó að mínu mati séu of margir bændur enn fyrir utan samtökin þrátt fyrir að njóta góðs af starfsemi þeirra.“

Umhverfismál og búvörusamningar

„Ef breytingarnar verða samþykktar taka þær gildi 1. júlí og í framhaldinu verða umhverfismál tengd íslenskum landbúnaði tekin til skoðunar og dregin saman í eina heildstæða skýrslu svo hægt verði að gera áætlun um hvað þurfi að gera á næstu árum til að bæta stöðuna og helst að kolefnisjafna allan landbúnað og alla bændur í landinu.

Annað er að horfa til endurskoðunar á búvörusamningnum 2023 og hverjar áherslur Bænda­samtakanna eiga að vera og hvað verður um búvörusamninginn 2026 þegar hann rennur út og hvaða sýn við höfum til framtíðar eftir það,“ segir Gunnar Þorgeirsson, formaður Bændasamtaka Íslands.

Vorverkum bænda seinkar
Fréttir 16. maí 2024

Vorverkum bænda seinkar

Veturinn sem leið var sá kaldasti frá vetrinum 1998 til 1999, samkvæmt tíðindum ...

Riðuveiki útrýmt innan 20 ára
Fréttir 16. maí 2024

Riðuveiki útrýmt innan 20 ára

Landsáætlun um riðuveikilaust Ísland hefur verið sett í samráðsgátt stjórnvalda.

Kornþurrkstöð reist í Eyjafirði
Fréttir 16. maí 2024

Kornþurrkstöð reist í Eyjafirði

Grunnur undir kornþurrkstöð í Eyjafirði er nú að taka á sig mynd í landi Laugala...

Mjólkurframleiðendur fá arðgreiðslu
Fréttir 16. maí 2024

Mjólkurframleiðendur fá arðgreiðslu

Kúabændur á starfssvæði Auðhumlu mega gera ráð fyrir arðgreiðslu frá samstæðunni...

Vetnisknúin skip í smíðum
Fréttir 15. maí 2024

Vetnisknúin skip í smíðum

Smíði er hafin á tveimur vetnis­ skipum á vegum Samskipa. Áætlað er að þeim verð...

Drómasýki í hrossum
Fréttir 13. maí 2024

Drómasýki í hrossum

Drómasýki er vaxandi vandamál í íslenskri hrossarækt. Til stendur að stofna star...

Steypan í Þverárrétt rannsökuð
Fréttir 13. maí 2024

Steypan í Þverárrétt rannsökuð

Úlfheiður Embla Ásgeirsdóttir framkvæmdi rannsókn á gæðum steypunnar sem notuð v...

Nýtt verknámshús byggt á Sauðárkróki
Fréttir 8. maí 2024

Nýtt verknámshús byggt á Sauðárkróki

Verknámshús Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra (FNV) á Sauðárkróki mun stækka ve...