Gamla Hraun 2
Á Gamla Hrauni 2 hefur verið búið nánast óslitið síðan við landnám. Hjónin Jón Ingi Jónsson og Jóhanna Sveinsdóttir keyptu jörðina árið 2009 sem hafði þá verið í eyði í nokkur ár og húsakostur var nánast að hruni kominn.
„Við byrjuðum á að endurbyggja íbúðarhúsið og breyta gamalli hlöðu í fjárhús og fyrstu kindurnar komu þar inn haustið 2010. Við fluttum svo inn í íbúðarhúsið í júní 2011, en áður höfðum við stundað svínabúskap í 15 ár í Hrunamannahreppi og Ölfusi. Síðan 2011 höfum við svo verið að gera upp gamalt fjós, bátaskýli og eins hefur einn hrútakofi bæst við,“ segir Jóhanna.
Býli: Gamla Hraun 2.
Staðsett í sveit: Í Eyrarbakkahreppi hinum forna, sem heitir í dag Sveitarfélagið Árborg.
Ábúendur: Við hjónin Jón Ingi Jónsson og Jóhanna Sveinsdóttir, ásamt dætrum okkar, Maríu Eir 22 ára og Önnu Sigríði 20 ára og fósturbörnum.
Fjölskyldustærð (og gæludýra): 6 manna fjölskylda, kettirnir Mollý og Torres og hundurinn Lubbi.
Stærð jarðar? 50 hektarar, þar af 15 hektara tún.
Gerð bús? Sauðfjárbú af minni gerðinni.
Fjöldi búfjár og tegundir? Í dag erum við með 40 kindur, 5 hross og 5 hænur. Við gerðum heiðarlega tilraun til að vera með geitur og ali grísi en það var ekki alveg að ganga upp þar sem þau voru með einbeittan brotavilja sem reyndi verulega á þolrifin hjá ábúendum.
Hvernig gengur hefðbundinn vinnudagur fyrir sig á bænum? Hér er farið á fætur kl. 7 alla virka daga, en þá fer húsbóndinn til sinnar vinnu utan heimilisins og sinnir svo bústörfunum þess á milli. Frúin sinnir börnum og búi yfir daginn, en við erum líka fósturforeldrar, ásamt því er hún handverkskona og stendur vaktir í Gallerý Gimli á Stokkseyri. Svo fer það auðvitað eftir árstíð hvað verið er að gera á bænum en dagurinn er sjaldan nógu langur að okkar mati.
Skemmtilegustu/leiðinlegustu bústörfin? Það er einfaldlega bara allt skemmtilegt sem viðkemur bústörfunum, en þó alltaf leiðinlegt að þurfa að fella dýr.
Hvernig sjáið þið búskapinn fyrir ykkur á jörðinni eftir fimm ár? Ætli hann verði ekki bara svipaður og hann er, þó það eigi alltaf að fækka fénu á hverju hausti, en frúin fyllist alltaf valkvíða þegar velja á lífgimbrar og endar alltaf með of margar að mati bóndans. En svo stefnum við að því að fara út í skógrækt líka.
Hvaða skoðun hafið þið á félagsmálum bænda? Við teljum að félagsmál bænda séu mjög mikilvæg og eigi þeir bestu þakkir fyrir sem þeim sinna.
Hvernig mun íslenskum landbúnaði vegna í framtíðinni? Okkur finnst slæm þróun að stöðugt sé verið að auka innflutning á erlendu kjöti og grænmeti. Einnig höfum við áhyggjur af framtíð hefðbundinna fjölskyldubúa sem gæti orðið undir í samkeppni við verksmiðjubúin.
Hvar teljið þið að helstu tækifærin séu í útflutningi íslenskra búvara? Við teljum að helstu tækifærin í útflutningi íslenskra landbúnaðarafurða liggi í því að viðhalda hreinleika, heilbrigði og gæðum þeirrar vöru sem við framleiðum.
Hvað er alltaf til í ísskápnum? Mjólk, ostur, smjör og svo slatti af sultum og sósum.
Hver er vinsælasti maturinn á heimilinu? Lambakjöt og fiskur.
Eftirminnilegasta atvikið við bústörfin? Ætli það sé ekki bara þegar við sóttum fyrstu kindurnar okkar haustið 2010, en þær koma frá Hofi í Öræfum. Við lögðum af stað að morgni með fullan bíl af börnum og hestakerru en þegar komið var á Vík bilaði bíllinn en bóndinn á Hofi var svo almennilegur að koma á móti okkur með kindurnar og góður vinur okkar kom svo með annan bíl og kerru til Víkur til að flytja menn og dýr heim á Gamla Hraun.