Gemlufall
Gemlufall í Dýrafirði er við norðanverðan Dýrafjörð og var fyrst getið í Gísla sögu Súrssonar sem gerist seint á 10. öld en það var á Gemlufallsheiðinni þar sem hann sagði hin frægu orð „Nú falla öll vötn til Dýrafjarðar“.
Hjónin Elsa María og Jón Skúlason tóku við búinu 1994 en áður bjó Jón í félagsbússkap á bænum með foreldrum sínum þar sem var mjólkurframleiðsla og fjárbúskapur.
Býli: Gemlufall.
Staðsett í sveit: Við norðanverðan Dýrafjörð.
Ábúendur: Elsa María og Jón Skúlason.
Fjölskyldustærð (og gæludýra): Við eigum 4 dætur, Ástey, Margrét Ástrós, Hafdís Katla, Heiðdís Birta og fóstursoninn Ólaf Ísak. 3 barnabörn, Inga Hrafn, Margréti Auði og Söru Diljá og svo er eitt til viðbótar væntanlegt í ágúst. Dæturnar eru allar uppkomnar og fluttar að heiman en koma mikið heim ásamt mökum og barnabörnunum.
Gæludýr á bænum eru hundarnir Tinna og Stella, og 4 fiskar.
Stærð jarðar? Jörðin Gemlufall mælist um 619 hektarar og svo eigum við einnig jörðina Lækjarós.
Gerð bús? Í dag er á bænum fjárbúskapur, nautaeldi, nokkrar hænur og ferðaþjónustu einnig erum við þátttakendur í Beint frá býli. Mjólkurframleiðsla lagðist af 2020.
Hvernig gengur hefðbundinn vinnudagur fyrir sig á bænum?
Hefðbundinn dagur í sveitinni er eitthvað á þá leið að við förum á fætur, fáum okkur morgunmat og kaffi áður en farið er að huga að dýrunum, svo er athugað með stöðu væntanlegra gesta í ferðaþjónustunni. Svo er bara gengið í það sem þarf að gera, en það er eitt af því sem sem er svo skemmtilegt við það að búa í sveit að fjölbreytnin er mikil og enginn dagur er eins. Það eru auðvitað þessi stærri hefðbundnu störf eins og girðingavinna, heyskapur, sauðburður, smölun og slíkt en líka þrif í kringum bæinn og dýrin og svoleiðis. Svo reynum við líka alltaf að njóta líka, ferðast og hafa gaman af lífinu. Elsa María er starfandi utan búsins sem sérkennslustjóri í leikskólanum Sólborg á Ísafirði.
Skemmtilegustu/leiðinlegustu bústörfin? Það er öll vinna skemmtileg í góðu veðri, nema að þrífa hænsnakofann það er alltaf leiðinlegt.
Hvernig sjáið þið búskapinn fyrir ykkur á jörðinni eftir fimm ár? Við sjáum fyrir okkur vaxandi ferðaþjónustu og þá líka meiri þjónustu við ferðafólk.
Hvað er alltaf til í ísskápnum? Brauðostur og heimagerð aðalbláberjasulta.
Hver er vinsælasti maturinn á heimilinu? Heimatilbúin pitsa, kjötsúpa, steiktur fiskur svo er kalkúnninn á jólunum algjört uppáhald.
Eftirminnilegasta atvikið við bústörfin? Þegar húsið okkar hjóna kom með skipi til Þingeyrar fullbúið með ísskáp, hægindastól og fleiru og var svo flutt að Gemlufalli á vörubíl, híft af með krana og var nánast hægt að stinga í samband og flytja inn.
Dæturnar Heiðdís, Magga Rós, Ástey og Hafdís Katla.
Ólafur Ísak, Ingi Hrafn og Margrét Auður.