Hvítidalur 2
Þau hjónin Þorbjörn Gerðar og Dögg Ingimundardóttir búa á Hvítadal 2 í Saurbæ og fáum við að líta í heimsókn.
Býli? Hvítidalur 2, Saurbæ Dalasýslu.
Ábúendur? Dögg Ingimundardóttir og Þorbjörn Gerðar.
![](/media/1/3-26.jpg)
Fjölskyldustærð (og gæludýra)? Við hjónin og svo börnin okkar Victor Breki (21), Karen (18), Birna Rós (13) og Gerðar Freyr (3) en svo eigum við líka alveg helling í Þorsteini Fannari (19). Einnig eigum við hundana Mikka, Skottu, Vask, Kat og Bósa og kettina Camillu og Rupp.
Stærð jarðar? Rúmir 600 ha.
Gerð bús? Sauðfjárbú en eigum þó líka 6 hesta og 6 hænur.
Fjöldi búfjár? Í kringum 200 vetrarfóðrað, stefnum þó á fjölgun.
Hvernig gengur hefðbundinn vinnudagur fyrir sig á bænum? Yfir vetrarmánuðina þaf að byrja á að koma yngri börnunum í skólabílinn, eftir það förum við í fjárhúsin og lítum eftir hrossum og hænsnum og gefum þar sem þarf, því næst reynum við að dytta að því sem þarf og sinna öðrum tilfallandi verkefnum.
Skemmtilegustu/leiðinlegustu bústörfin? Sauðburðurinn er alltaf mjög yndislegur tími en einnig er mjög gaman þegar heyskapur gengur vel.
Leiðinlegustu bústörfin eru án efa að hirða rúllurnar heim eftir góðan heyskap.
![](/media/1/4-22.jpg)
Hvernig sjáið þið búskapinn fyrir ykkur á jörðinni eftir 5 ár? Vonandi bara nokkuð svipað fyrir utan að við stefnum á að fjölga aðeins ef vel gengur.
Hvað er alltaf til í ísskápnum? Smjör, ostur, mjólk ásamt endalausum sultukrukkum.
Hver er vinsælasti maturinn á heimilinu? Ærfille með heimagerðri bernaise og kartöflum klikkar ekki og í uppáhaldi hjá öllum á heimilinu.
Eftirminnilegasta atvikið við bústörfin? Ætli það hafi ekki verið í vor þegar það snjóaði. Þegar 5 dagar voru búnir af sauðburði þurftum að taka inn allt lambfé og 2/3 af kindunum báru á 3 sólarhringum með allt inni. Það var orðið frekar lítið pláss í húsunum en sem betur fer skánaði veðrið hratt eftir það.