Víkingsstaðir
Magnús Sigurðsson, Halldóra Sveinsdóttir og Ína Gunnlaugsdóttir komu inn í búskapinn á Víkingsstöðum árið 2003 en þar reka þau félagsbú ásamt móður Magnúsar og Ingibjörgu, systur hans, sem býr á Auðólfsstöðum. Ingibjörg kemur í sauðburð og á haustin til að hafa stjórn á því hvað er sett á. Magnús er uppalinn á Víkingsstöðum en foreldrar hans fluttu þangað 1974.
Býli: Víkingsstaðir.
Staðsett í sveit:
Völlum á Fljótsdalshéraði.
Ábúendur:
Magnús Sigurðsson,
Halldóra Sveinsdóttir og Ína Gunnlaugsdóttir.
Fjölskyldustærð (og gæludýra):
Við eigum þrjá drengi, Sigurð Orra (1999), Jóhann Inga (2001) og Gunnþór Svein (2010). Fjórir hundar og tveir kettir.
Stærð jarðar:
Um 400 hektarar.
Gerð bús:
Sauðfjárbú og verktaka við heyskap.
Fjöldi búfjár og tegundir:
Um 430 fjár.
Hvernig gengur hefðbundinn vinnudagur fyrir sig á bænum?
Fer eftir árstíðum, hefðbundin störf á sauðfjárbúi.
Skemmtilegustu/leiðinlegustu bústörfin?
Flest eru bústörfin skemmtileg en þó er alltaf gaman að heyja í góðu verði, eins getur það verið leiðinlegt í óþurrkatíð.
Hvernig sjáið þið búskapinn fyrir ykkur á jörðinni eftir fimm ár?
Svipaðan og hann er í dag.
Hvaða skoðun hafið þið á félagsmálum bænda?
Teljum þau vera í góðum málum í dag. Þurfum að hafa þar öfluga forsvarsmenn á næstu árum.
Hvernig mun íslenskum landbúnaði vegna í framtíðinni?
Við verðum að vona að framtíð hans sé björt.
Hvar teljið þið að helstu tækifærin séu í útflutningi íslenskra búvara? Teljum að
helstu tækifærin séu í útflutningi á mjólkurafurðum og lambakjöti. Þurfum að halda á lofti hreinleika afurðanna.
Hvað er alltaf til í ísskápnum?
Léttmjólk, ostur, skinka og egg.
Hver er vinsælasti maturinn á heimilinu?
Það gætu verið nokkur svör við þessari spurningu ef allir eru spurðir. Þó klikkar grillað ærfile aldrei.
Eftirminnilegasta atvikið við bústörfin?
Ætli það sé ekki bara að hafa flutt austur aftur eftir ellefu ára búsetu í Reykjavík.