Ytra-Vallholt
Núverandi ábúendur tóku við búi af foreldrum Hörpu 1999. Fénu var fjölgað og gömlu minkabúi, sem til var, breytt í fjárhús til viðbótar við 300 kinda hús sem fyrir voru.
Verið er að byggja aðeins í við þannig að fénu mun líklega fjölga eitthvað á næstunni.
Býli: Ytra-Vallholt.
Staðsett í sveit: Fyrrverandi Seyluhreppi í núverandi Sveitarfélaginu Skagafirði.
Ábúendur: Björn Grétar Friðriksson og Harpa Hrund Hafsteinsdóttir.
Fjölskyldustærð (og gæludýra):
Friðrik Snær, 13 ára, Hafsteinn Máni, 11 ára og Birta Lind, 2 ára.
Stærð jarðar? Um 250 ha.
Gerð bús? Blandað bú.
Fjöldi búfjár og tegundir? 600 kindur, 50 hross, 2 hundar, 3 kettir og 3 hænur.
Hvernig gengur hefðbundinn vinnudagur fyrir sig á bænum?
Mjög misjafnt eftir árstíðum. Á veturna eru það gjafir og tamningar sem taka mestan tímann, á sumrin heyskapur og önnur tilfallandi verk.
Skemmtilegustu/leiðinlegustu bústörfin? Sauðburðurinn skemmtilegastur en biluð tæki og skítmokstur leiðinlegast.
Hvernig sjáið þið búskapinn fyrir ykkur á jörðinni eftir 5 ár? Vonandi svipaður nema betra fé og betri hross.
Hvaða skoðun hafið þið á félagsmálum bænda? Þau eru bara í góðu gengi.
Hvernig mun íslenskum landbúnaði vegna í framtíðinni? Bara vel enda verið að framleiða úrvals vöru.
Hvar teljið þið að helstu tækifærin séu í útflutningi íslenskra búvara? Lambakjöt og mjólkurvörur.
Hvað er alltaf til í ísskápnum? Mjólk, smjör, ostur og rabarbarasulta.
Hver er vinsælasti maturinn á heimilinu? Mjög misjafnt eftir heimilismeðlimum.
Eftirminnilegasta atvikið við bústörfin? Þegar fyrsta hrossið okkar fór í fyrstu verðlaun. Búin að eignast mörg fyrstu verðlauna-hross síðan en það toppar ekkert gleðina yfir þessu fyrsta.