Acai-skálar og vegan-vöfflur
Auðvelt er að gera skál með berjamauki, ávöxtum og öllu uppáhaldshráefninu þannig að hún líkist svokallaðri „acai skál“. Þetta er gómsætur matur fullur af andoxunarefni og hollri fitu og ef þið gerið þetta heima er hægt að nálgast þetta hvenær sem hentar, fyrir brot af verði sem slíkt myndi kosta úti í búð.
En hvað er „acai“?
Fyrir það fyrsta, þá eru acai-berin ólík mörgum ávöxtum og berjum sem innihalda mikið af sykri og lítið af fitu. Acai-berin innihalda í raun nokkuð meira af fitu en lítið af sykri.
Uppruni þessarar „skálar“ er í Brasilíu, hún samanstendur af frosnum „acai-ávöxtum“ sem eru maukaðir og bornir fram sem „smoothie“ í skál eða glasi. Í Brasilíu eru acai-skálar venjulega toppaðar með granola, banana og guaraná-sírópi. Nokkur önnur afbrigði er þó að finna um allt land, þar á meðal acai-skálar toppaðar með tapioka-kúlum og saltari útgáfu sem er toppað með rækju eða harðfiski.
Með hjálp frá samfélagsmiðlum hafa acai-skálar orðið vinsælar, þökk sé skærum lit þeirra og úrvali af hráefni.
Acai-skála hráefni:
- Gott er að nota hreint ósykrað acai-mauk. Ef þú finnur það ekki þá er líka acai-duft í boði.
- Frosin bláber og jarðarber - Sem betur fer bragðast acai frábærlega með nánast hvaða ávöxtum sem er. Sem sagt, það bragðast sérstaklega dásamlega með frosnum berjum. Í raun gengur hvaða blanda sem er, með bláberjum, jarðarberjum eða brómberum.
Banani - Helst frosnir, bananar eru náttúrulega ofursætir og ofurkremaðir (svo innihalda þeir líka kalíum!). - Vökvi - Já, þú þarft einhvers konar vökva til að koma hlutunum áfram. Ég bætti við mjólk til að auka prótein-up pörvunina, en ekki hika við að bæta við ykkar eigin uppáhalds ávaxtasafa.
- Jógúrt - Jógúrt er góð í skálina, en hentar kannski ekki öllum.
Acai-skálar
Hráefni
- Hráefni sem fallegt er að skreyta með
- Granola
- Fræ
- Hnetur
- Ferskir niðurskornir ávextir
- Skál fyllt með þykkum og sléttum acai smoothie
Aðferð
Búðu til þessa acai-skál í þessum einföldum skrefum:
Frystið ávextina ykkar eða kaupið frosna.
Þegar búið er að frysta ávextina eru þeir settir í stóran blandara, þá mjólkin, síðan jógúrtin og loks er frosnum bláberjum, jarðarberjum, banana og acai-berjamauki bætt við.
Gott er geyma í frysti þangað til það kemur að því að njóta þess, eða gera nokkra skammta í einu og geyma í frysti.
Skreytið svo skálina eins og þið viljið hafa hana til að fara beint á Instagram; falleg ber, banani, stökkt granola, hnetusmjör. Sumir vilja jógúrt eða skyr á toppinn.
Auðveldar vegan-vöfflur
– sem auðvelt er að breyta í vegan-borgara
Hráefni
- 60 g hafrar
- 60 g kínóa
- 120 g sojamjólk
- 30 g hlynsíróp (má sleppa í vegan borgarann)
- 1 tsk. lyftiduft
Fyrir sætar vöfflur
- 1 dós kókosmjólk
- 40 g hlynsíróp
- 1 tsk. vanilluþykkni
- skreytið með berjum og banana
Aðferð
Breyttu höfrum og kínóa í eins konar „hveiti“ og blandaðu síðan saman við allt annað hráefni til að gera vöfflur.
Bakið með vöfflujárni á meðalhita í 3–5 mínútur á hvorri hlið.
Blandið saman kókosmjólk, hlynsírópi og vanillu og setjið í rjómasprautu.
Vegan vöffluborgari
Takið sama grunninn og bætið kryddjurtum og smá hvítlauk við, ásamt salti og pipar eftir smekk.
Mikið framboð er af vegan hamborgurum sem er gott að steikja og framreiða á vöfflu með uppáhalds íslenska grænmetinu og vegan chili-majó.