Umhirða á bremsum og nauðsyn að skipta um bremsuvökva
Höfundur: Hjörtur L. Jónsson
Það eru mjög fáir sem gera vel við bílinn sinn eftir að ábyrgðarskoðunum lýkur. Þegar við eigum nýlega bíla þarf að færa þá í ársskoðun sem innflytjandi bílsins fer fram á til að viðhalda ábyrgð.
Það sem gert er í flestum viðhaldsskoðunum er m.a. þrif á bremsum og bremsuklossasæti eru oft sandblásin og sprautuð með sinkmálningu. Í lýsingu á nótu frá B.L. þar sem ársgamall bíll var yfirfarinn segir m.a. orðrétt: „Bremsur verkaðar upp. Haldarar sandblásnir og sinkhúðaðir“.
Bremsuvökvi verður lélegur á um fimm árum eða fyrr
Þegar bílar fara í hefðbundna smurþjónustu er það vinnuregla á mörgum smurstöðvum að stinga þar til gerðu mælitæki sem segir til um hvort þarf að skipta um bremsuvökva. Ef vökvinn mælist ónýtur í hæðarglasinu er hann fyrir löngu orðinn ónýtur við bremsudælurnar.
Bremsuvökvinn eyðileggst fyrst í lagnakerfinu við bremsudælurnar. Sem dæmi, er ekki óalgengt að viðgerðarmenn á rallýbílum þurfi að tappa af bremsuvökva oft í hverri keppni. Það er vegna þess að bremsuvökvinn hitnar of mikið á sumum sérleiðum þrátt fyrir að flestir rallökumenn noti bremsuvökva sem þolir mun meiri hita en sá sem notaður er í venjulega bíla.
Gott ráð til að nýta betur bremsuvökvann
Á veturna er mjög víða sullað miklu salti á götur til að eyða ís og hálku. Salt er mesti óvinur bremsukerfa í bílum og í einstaka bílum eru bremsur sem einfaldlega þola ekki salt. Af þessum sökum er mjög gott að reyna sem oftast að koma því við að skola með volgu vatni í gegnum felgurnar saltið af bremsunum á bílunum. Einnig ættu menn að tappa bremsuvökvanum af við hverja bremsudælu einu sinni eða tvisvar á ári. Þetta er tveggja manna verk, annar er inni í bíl og stígur á bremsupedalann og hinn er við bremsudælurnar útbúinn flösku með litla slöngu sem sett er upp á lofttappann á hverri bremsudælu, losa um lofttappann, lætur stíga pedalann niður, lokar fyrir tappann og fer á næstu dælu.
Maður finnur muninn strax eftir svona aðgerð
Hvenær veit maður þegar bremsuvökvi er með smá raka í eða er skítugur?
Svar: Það getur til dæmis verið þegar maður verður var við að einn bremsudiskur er heitari en annar.
Heyrir ískurshljóð í bremsum smá tíma eftir að bremsur eru notaðar. Eins ef manni finnst að það þurfi að stíga óþægilega fast á bremsupedalann til að bíllinn bremsi.
Raki og óhreinindi geta verið til þess að stimpill í bremsudælu fer of hægt til baka eftir að bremsum er sleppt og liggja þá bremsuklossarnir í smá stund á disknum sem gerir óþarfa slit á bremsum og stuttan endingartíma á bremsudiskum og klossum.
Eftir að tappað er af hverri dælu smá bremsuvökva eða skipt alveg um vökva finnur maður ótrúlegan mun hvað bremsurnar eru miklu betri.