Um 18.000 manns í strjálbýli treysta með einum eða öðrum hætti á landbúnað
Sigurður Eyþórsson, framkvæmdastjóri Bændasamtaka Íslands, sagði á fundi um aukna verðmætasköpun í íslenskum landbúnaði að samkvæmt tölum Hagstofu Íslands væri landbúnaðurinn að skila yfir 50 milljörðum í framleiðsluverðmætum inn í íslenska hagkerfið.