Flugumferð um 10 flugvelli í ESB drógst saman um 1.898.500 flugvélar
Hrikalegur samdráttur var í flugi í Evrópusambandsríkjunum á síðasta ári vegna COVID-19 faraldursins. Á þeim tíu flugvöllum þar sem fækkun flugvéla hefur verið mest, eða frá -53% til -66%, hefur flugvélum sem fara um þá velli í almennu flugi í heild fækkað um 1.898.500 vélar.