Vill meiri útbreiðslu félagslandbúnaðar
Hugtakið félagslandbúnaður skýtur upp kollinum endrum og sinnum í umræðum um sjálfbæra og umhverfisvæna matvælaræktun. Nýlega var haldið málþing um uppbyggingu á félagslandbúnaði á Íslandi.
Hugtakið félagslandbúnaður skýtur upp kollinum endrum og sinnum í umræðum um sjálfbæra og umhverfisvæna matvælaræktun. Nýlega var haldið málþing um uppbyggingu á félagslandbúnaði á Íslandi.
Sigurður Unuson er ræktandi í Seljagarði, sameiginlegum matjurtagarði í Breiðholti. Þar stunda um 20 Breiðhyltingar saman matjurtaræktun á sínum leigureitum. Sigurður heillast af hugmyndum um samfélagslega rekna ræktunarstarfsemi og hyggst koma á fót félagslandbúnaði í borginni.