Viljayfirlýsing um uppbyggingu koltrefjaverksmiðju
Skrifað hefur verið undir viljayfirlýsingu um uppbyggingu koltrefjaverksmiðju í Skagafirði. Samræmist viljayfirlýsingin stefnu stjórnvalda um eflingu nýfjárfestingar í íslensku atvinnulífi og samkeppnishæfni Íslands á sviði nýfjárfestingar, sérstaklega á dreifbýlum svæðum líkt og á Norðurlandi vestra.