Brakaði í tánum mínum
Þrándur Elí Sigtryggsson er fæddur í Neskaupstað 2012 og verður 9 ára 4. nóvember. Hann var að klára 3. bekk í Nesskóla sem er grunnskólinn í Neskaupstað.
Þrándur á þrjá bræður og eina systur, mamma hans og pabbi heita Rósa Dögg og Sigtryggur og býr öll fjölskyldan í Neskaupstað.
Nafn: Þrándur Elí Sigtryggsson.
Aldur: 8 ára.
Stjörnumerki: Sporðdreki.
Búseta: Neskaupstaður.
Skóli: Nesskóli.
Hvað finnst þér skemmtilegast í skólanum? Íþróttir eru skemmtilegastar.
Hvert er uppáhaldsdýrið þitt? Hestur.
Uppáhaldsmatur: Makkarónugrautur.
Uppáhaldshljómsveit: Á ekki uppáhaldshljómsveit, finnst bara mörg lög skemmtileg.
Uppáhaldskvikmynd: Ferdinand.
Fyrsta minning þín? Þegar bróðir minn var að láta braka í tánum mínum í eldhúsinu.
Æfir þú íþróttir eða spilarðu á hljóðfæri? Ég æfi fótbolta, bretti og á hest.
Hvað ætlar þú að verða þegar þú verður stór? Atvinnumaður í fótbolta.
Hvað er það klikkaðasta sem þú hefur gert? Hoppa í sjóinn.
Gerðir þú eitthvað skemmtilegt í sumar? Fór á fótboltamót og heimsótti ömmu og afa á Sauðárkróki.
Næst » Ég skora á Maríu Dögg Valsdóttur að svara næst.