Fór í eina af bröttustu vatnsrennibrautum á Tenerife
Kristján Hrafn, eða Krummi eins og hann er alltaf kallaður, býr á Ísafirði og æfir fótbolta með Vestra og handbolta með Herði. Fjölskyldan á nokkrar kindur sem á sumrin ganga um fjöllin fyrir vestan og á haustin er skemmtilegt að smala þeim aftur heim.
Nafn: Kristján Hrafn Kristjánsson.
Aldur: 12 ára.
Stjörnumerki: Naut.
Búseta: Á Ísafirði.
Skóli: Grunnskólinn á Ísafirði.
Hvað finnst þér skemmtilegast í skólanum? Íþróttir.
Hvert er uppáhaldsdýrið þitt? Hundur.
Uppáhaldsmatur: Mexíkóskt lasagna.
Uppáhaldshljómsveit: Imagine dragons.
Uppáhaldskvikmynd: Harry Potter og Jumaji.
Uppáhaldsbókin þín? Harry Potter.
Fyrsta minning þín? Veit ekki.
Æfir þú íþróttir eða spilarðu á hljóðfæri? Fótbolta og handbolta.
Hvað ætlar þú að verða þegar þú verður stór? Atvinnumaður í fótbolta eða handbolta.
Hvað er það klikkaðasta sem þú hefur gert? Ég fór í eina af bröttustu vatnsrennibrautum á Tenerife.
Hvað verður skemmtilegt að gera í vetur? Fara á skíði.
Næst » Kristján Hrafn skorar á frænku sína, Hildigunni Sigrúnu, að svara næst.