Úðaði heilum brúsa af fjólubláu í hárið
Helena er alveg að verða átta ára og æfir fimleika og fótbolta. Hún stefnir á að verða leikkona.
Nafn: Helena Ása Snæbjörnsdóttir.
Aldur: Er 7 að verða 8.
Stjörnumerki: Bogamaður.
Búseta: Fákahvarf 14, Kópavogi.
Skóli: Vatnsendaskóli.
Hvað finnst þér skemmtilegast í skólanum? Smiðja.
Hvert er uppáhaldsdýrið þitt? Köttur.
Uppáhaldsmatur: Grjónagrautur.
Uppáhaldshljómsveit: Páll Óskar.
Uppáhaldskvikmynd: Fólkið í blokkinni.
Fyrsta minning þín? Sjá pabba og mömmu.
Æfir þú íþróttir eða spilarðu á hljóðfæri? Já, ég æfi fótbolta og fimleika.
Hvað ætlar þú að verða þegar þú verður stór? Leikkona.
Hvað er það klikkaðasta sem þú hefur gert? Þegar ég spreyjaði heilum brúsa af fjólubláu í hárið mitt.
Gerðir þú eitthvað skemmtilegt í sumar? Fór til útlanda í vatnsrennibrautagarð og dýragarð.
Næst » Helena skorar á systur sína Elísabetu að svara næst.