Ugla er auðvitað uppáhaldsdýrið
Hrafn Sölvi Vignisson er 8 ára fjörkálfur sem fæddist í Reykjavík, bjó fyrstu 4 árin á Sauðárkróki en hefur síðan búið á Bifröst.
Hann var snemma altalandi og hefur afskaplega gaman af að tala, hann hefur ríkt ímyndunarafl og sterkar og skemmtilegar skoðanir. Hann er mikill áhugamaður um dýr og segist iðulega vera dýrafræðingur þegar hann kynnir sig fyrir fólki.
Nafn: Hrafn Sölvi Vignisson.
Aldur: 8 ára.
Stjörnumerki: Meyja.
Búseta: Bifröst.
Skóli: Varmalandsskóli.
Hvað finnst þér skemmtilegast í skólanum? Mér finnst íþróttir skemmtilegastar.
Hvert er uppáhaldsdýrið þitt? Auðvitað ugla.
Uppáhaldsmatur: Pastasalat með beikoni.
Uppáhaldshljómsveit: Daði og gagnamagnið.
Uppáhaldskvikmynd: Green Lantern.
Fyrsta minning þín? Þegar ég labbaði niður stigann og fékk mér vatn með klaka.
Æfir þú íþróttir eða spilarðu á hljóðfæri? Ég spila á blokkflautu og þverflautu og langar að vera DJ.
Hvað ætlar þú að verða þegar þú verður stór? Ég ætla að verða DJ og dýralæknir.
Hvað er það klikkaðasta sem þú hefur gert? Ég fór niður kreisí vatnsrennibraut í Danmörku – Lalandia.
Hvað ætlarðu að gera skemmtilegt í sumar? Ég ætla að fara til ömmu minnar, gera eitthvað skemmtilegt með fjölskyldunni minni, hjóla og kannski byggja kofa.
Næst » Ég skora á vinkonu mína, Töru Kristínu, að svara næst.