Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 1 árs.
Á Listasafni Svavars Guðnasonar stendur nú yfir sýningin Hreyfing í föstum formum og litum á verkum Svavars. Myndin er tekin af sýningu Erlu Þórarinsdóttur í safninu 2021.
Á Listasafni Svavars Guðnasonar stendur nú yfir sýningin Hreyfing í föstum formum og litum á verkum Svavars. Myndin er tekin af sýningu Erlu Þórarinsdóttur í safninu 2021.
Líf og starf 7. september 2022

Menningarmiðstöð Hornafjarðar

Höfundur: Eyrún Helga Ævarsdóttir, forstöðumaður.

Árið 1990 var Menningarmiðstöð Hornafjarðar stofnuð, með sameiningu nokkurra safna.

Menningarmiðstöðin vinnur að metnaðarfullri menningarstarfsemi innan sveitarfélagsins og starfrækir sex söfn; bóka-, byggða-, héraðsskjala-, lista-, náttúrugripa- og sjóminjasafn, ásamt atvinnu-, ferða- og rannsóknarsviði sem starfar þvert á einingarnar.

Sýningar á vegum safnanna eru mikilvægur þáttur í safnastarfinu. Við uppsetningu sýninga leggjum við áherslu á sérstöðu Hornafjarðar og samfélagsins sem þar er og var.

Listasafn Svavars Guðnasonar var opnað við hátíðlega athöfn 24. júní 2011. Sveitarfélagið hafði fengið fjölda verka Svavars að gjöf frá Ástu Eiríksdóttur, ekkju hans. Með gjöfinni var lagður grunnur að stofnun Svavarssafns sem enn í dag sýnir verk hans og annarra listamanna. Nú stendur yfir sýningin Hreyfing í föstum formum og litum, sem er sýning á geómetrískum abstraktverkum Svavars, og er Jón Proppé sýningarstjóri.

Byggða- og náttúrugripasafnið í Gömlubúð var mikill ævintýra- heimur, en nú bíða munir safnsins eftir nýju sýningarhúsnæði.

Vonast er til að koma safninu í gott sýningarhúsnæði á næstu árum. Þó að byggðasafnið hafi ekki aðstöðu til að sýna í sýningarsal þá nýtir starfsfólk Menningarmiðstöðvarinnar hvert tækifæri til að sýna munina.

Þegar þrengt er að sýningaraðstöðu safna þá er starfsfólk fljótt að miða út þá staði sem hægt er að nýta undir litlar sýningar og eru þær settar upp þegar tækifæri gefst. Aukinheldur er varðveisluhúsnæði stofnunarinnar gott og stórt og þar er tekið á móti hópum.

Skráning menningarminja

Vorið 2020 hófst skráning eyðibýla í sveitarfélaginu, í samstarfi við Þórbergssetur og fleiri aðila. Verkefnið kallast Fornbýli, búsetu- og menningarminjar í landslagi í Austur-Skaftafellssýslu og felst í að kortleggja þau fjölmörgu býli og hjáleigur sem farið hafa úr ábúð í sýslunni, sum hver fyrir árhundruðum síðan.

Sýnilegar minjar, s.s. húsatóftir, garðlög og aðrar mannvistarleifar, eru mældar upp og lýst í máli og myndum. Leitast er við að draga fram búsetusögu hvers býlis út frá margvíslegum heimildum, þ.á m. þekkingarbrunni heimamanna. Með verkefninu verður gerður sýnilegri merkilegur þáttur í sögu forvera okkar sem hér bjuggu fyrr á öldum. Hefur verið stofnuð vefsíðan www.busetuminjar.is og þar má sjá niðurstöður skráninga í Suðursveit. Unnið er að skráningu á Mýrum og má vænta niðurstöðu hennar á heimasíðunni á næsta ári.

Starfsfólk Menningarmið- stöðvarinnar, ásamt landeigendum Kvískerja og Gísla Sverri Árnasyni, vinnur að verndun sögu Kvískerja. Markmiðið er verndun þeirra skjala og minja sem viðkoma sögu systkinanna á Kvískerjum og rannsókna þeirra á náttúru og staðháttum. Starfsfólk Menningarmiðstöðvarinnar sér um að skrá, flokka og pakka menningarminjum og skjölum frá Kvískerjum og stefnt er að því að ljúka pökkuninni fyrir ágústlok. Við tekur skráning og forvarsla skjala og muna í varðveisluhúsnæði byggða- og skjalasafnsins.

Viðburðir

Auk sýningarstarfs og skrásetningar menningararfs stendur Menningar- miðstöð Hornafjarðar fyrir fjölbreyttu menningarstarfi í sveitarfélaginu, hátíðum og viðburðum þar sem samfélagið getur komið saman og hlýtt á fallega tóna eða fræðst um spennandi málefni.

Barnastarf Menningarmið- stöðvarinnar er vel sótt á sumrin, þar er boðið upp á styttri ferðir um svæðið svo krakkar fái tækifæri til að kynnast nærumhverfi sínu á nýjan hátt. Farið er í báts- og rútuferðir, lífríki kynnst með sveitaheimsóknum og smásjám, saga samfélagsins könnuð og listasmiðjur haldnar.

Einnig hefur bókasafnið staðið að lestrarátakinu Sumarlestri, sem hvetur börn til að lesa yfir sumarmánuðina og veitt eru hvatningarverðlaun að hausti.

Skylt efni: söfnin í landinu | menning

Stjörnuspá vikunnar
Líf og starf 15. júlí 2024

Stjörnuspá vikunnar

Vatnsberinn er eitthvað órór þessa dagana enda einhver stífla á verkefnum í krin...

Gerum okkur dagamun
Líf og starf 12. júlí 2024

Gerum okkur dagamun

Nú er ekki seinna vænna en að fara að leggja línurnar fyrir sumarið og með það t...

Bænder
Líf og starf 12. júlí 2024

Bænder

Sumir fara á Tinder. Aðrir hafa ekki tíma í slíkt vegna anna í búskapnum. Hér, k...

Vættafundur á Eyjabökkum
Líf og starf 10. júlí 2024

Vættafundur á Eyjabökkum

Orðsins list kemur að þessu sinni frá Oddbjörgu Sigfúsdóttur.

Sumarkveðja
Líf og starf 10. júlí 2024

Sumarkveðja

Nú þegar lífið kviknar með sumrinu og golan leikur við kinn, skulum við gleðjast...

Himbrimi
Líf og starf 9. júlí 2024

Himbrimi

Himbrimi er nokkuð stór vatnafugl og er einn af einkennisfuglum íslenskra heiðav...

Sumarsveiflan 2024
Líf og starf 8. júlí 2024

Sumarsveiflan 2024

Áherslur tískunnar fara nokkuð vítt og breitt þetta árið en nú þegar er farið að...

Dugur og elja ofar öllu
Líf og starf 8. júlí 2024

Dugur og elja ofar öllu

Eitt þeirra mætu kvenfélaga sem hér á landi sitja er Kvenfélag Hringsins sem hef...