Linsoðið egg, íslensk rækja og heimalagað majónes
Höfundur: Bjarni Gunnar Kristinsson
Egg eru úrvalsfæða og má nýta sem próteingjafa. Þá er sniðugt að gera smurt brauð sem er passleg magafylli án þess að tæma budduna, því brauðið kemur á móti minni skammti af próteini.
Æskilegt er að nota gott brauð, helst danskt súrdeigs-rúgbrauð.
Heimalagað majónes
- 70 g eggjarauða
- 20 g Dijon-sinnep
- 7 g salt
- 120 ml hvítvínsedik eða eplaedik
- 3 dl bragðlítil olía
- 400 ml kaldpressuð repjuolía (fæst nú íslensk)
Þessi uppskrift er stór og er passlegt að gera hálfa uppskrift nema fólk vilji eiga alvöru majónes í kælinum, geymist ágætlega við rétta kælingu.
Aðferð
Setjið eggjarauður, sinnep, salt og edik í skál og hrærið vel saman í 30 sekúndur. Svo er olíunni hellt í mjórri bunu saman við og þeytt áfram þar til majónesið hefur þykknað. Setjið majónesið í krukku með loki og geymið í ísskáp (og þá eigið þið majónes án aukaefna og með hollri íslenskri fitu).
Smurbrauð með stökku kjúklingaskinni og rækju
- 100 g kjúklingaskinn
- salt
- 4 egg
- 4 sneiðar af góðu kornrúgbrauði
- smjör fyrir brauðið
- 200 g rækjur
- salt og pipar
- grænar kryddjurtir að eigin vali til skrauts
Aðferð fyrir stökkt kjúklingaskinn
Takið kjúklingaskinn af læri, og fjarlægið umfram fitu. Setjið á smjörpappír og kryddið létt með salti. Bakið í ofni við 160 gráður í eina klukkustund. Athugið að skinnið er mjög brothætt.
Sjóðið egg eftir smekk. Eggjarauðan má vera blaut og þá tekur suðan um 5–7 mínútur. Kælið eggin í köldu vatni og skerið í helminga. Setjið smjör á brauðið, svo áleggið (eggið) og því næst majónes þar ofan á. Bætið rækjum við og skreytið með kjúklingaskinni og grænum kryddjurtum að eigin vali.
![](/media/1/2017-01-30-12.00.jpg)
Smurt brauð með kartöflum, dilli, smjöri og salti
Nýjar kartöflur á að meðhöndla með virðingu en þær eru líka góðar úr köldum jarðhýsum bænda. Það skiptir vissulega máli hvernig þær eru eldaðar. Hér er einföld uppskrift með dilli og salti.
- 1 kg litlar kartöflur
- 1 búnt dill
- 50 g af smjöri
- salt
Aðferð
Skrúbbið kartöflur vel í köldu vatni og setjið þær í pott með vatni og látið vatnið ná yfir kartöflurnar. Bætið ögn af salti við. Það þarf að vera nóg af salti til að kartöflur smakkist ákjósanlega – og setjið dillstiklana með. Sjóðið kartöflurnar varlega með lokið á. Þegar kartöflur sjóða, fjarlægja froðu og önnur óhreinindi með skeið. Lækkið hitann og sjóðið við lágan hita í 5–6 mínútur. Slökkvið þá á hitanum og látið kartöflurnar liggja í vatninu í um 5–7 mínútur. Skolið og hellið vatninu af og framreiðið kartöflur með hökkuðu dilli, köldu smjöri og ögn af sjávarsalti.
Framreiðið með heimalöguðu majónesi og kartöfluflögum á smurbrauðinu.
Þetta er úrvals smurbrauð en það má einnig nota rækju og egg saman á brauðið.