Sítrónukjúklingur og ný íslensk jarðarber
Höfundur: Bjarni Gunnar Kristinsson
Þó fátt bendi til þess að sumarið sé formlega hafið þá eru ný íslensk jarðarber komin í verslanir. Þau eru ljúffeng og tilvalin í eftirrétti eða ein og sér. Það er fljótlegt að gera marengs í örbylgjuofni – aðferð sem fáir kunna en virkar þegar tíminn er naumur.
En vindum okkur í uppskriftirnar. Kjúklingurinn er sívinsæll og nú fer tími kryddjurtanna að renna upp. Um að gera að prófa sig áfram og fá sér svo jarðarber í eftirmat.
Sítrónukjúklingur með heslihnetu-cous cous
Einföld blanda af jurtum, ferskri sítrónu og kjúklingi gefa fullkomna bragðsamsetningu. Ristaðar heslihnetur setja punktinn yfir i-ið, blandaðar í cous cous eða jafnvel soðin hýðishrísgrjón eða bygg. Þetta er próteinrík máltíð sem hægt er að matreiða á innan við 30 mínútum.
- 1 teningur kjúklingakraftur, blandaður við 100 ml vatn
- 1 stk. sítróna
- 1 rif hvítlaukur, smátt saxað
- 2 greinar timían, hakkað
- 6 greinar oregano, hakkað
- 2 stk. kjúklingabringur, skornar til helminga
- 1 tsk. salt og svartur pipar
- 200 g cous cous, soðið bygg eða hýðishrísgrjón (jafnvel kartöflur)
- 2 matskeiðar ristaðar heslihnetur, hakkaðar
- 1 msk. ólífuolía
Aðferð
Hitið ofninn í 200 °C.
Skerið sítrónu í tvennt. Sneiðið helminginn í þunna hringi og kreistið safann úr hinum helmingnum. Blandið saman við kjúklingakraftinn.
Blandið saman hvítlauk, timían og helmingnum af oregano kryddjurtinni. Setjið kjúklinginn í baksturhelda pönnu með skinn-hliðina upp. Kryddið kjúklinginn með jurta- og hvítlauksblöndunni. Setjið sítrónusneiðarnar ofan á kjúklinginn eða jafnvel undir skinnið (ef það er notað). Penslið kjúklingabringurnar með ólífuolíu og kryddið með salti og pipar. Hellið sítrónuseyðisblöndunni í fatið eða pönnuna með kjúklingnum.
Bakið þar til kjúklingurinn er gullinbrúnn í um 30 mínútur.
Á meðan, eldið meðlætið samkvæmt leiðbeiningum á pakka. Sigtið og setjið í miðlungs skál. Hrærið út í restinni af oregano kryddjurtinni ásamt ólífuolíu og heslihnetum. Framreiðið þegar kjúklingurinn er eldaður í gegn.
Chimichurri-sósa
Fersk sósa frá Argentínu sem passar með öllu kjöti og er tilvalin til að grisja kryddjurtagluggann eða taka smá ofan af graslauknum í garðinum (þegar hann kemur undan snjónum!).
- Lítið búnt steinselja, hakkað (graslaukur hentar líka)
- ½ tsk. oregano, ferskt eða þurrkað
- 2 hvítlauksrif
- 1 shallot laukur, hakkaður fínt
- ½ tsk. chilli flögur
- 2½ msk. ólífuolía
- safi af ½ sítrónu
- 2 tsk. rauðvínsedik
Aðferð
Vinnið saman steinselju, oregano, hvítlauk, shallotulauk og chilliflögur í matvinnsluvél eða saxið mjög fínt. Bætið 2 msk. af ólífuolíu, sítrónusafa og ediki. Sumir vilja krydda meira eða minna með chili, notið eftir smekk. Saltið og piprið.
Jarðarber, rjómi og ofureinfaldur örbylgjumarengs
- 1 askja ný íslensk jarðarber
- 300 g flórsykur
- 1 léttbarin eggjahvíta
- 1 tsk. kakóduft (má sleppa)
- Þeyttur rjómi, til að framreiða með jarðarberjunum
Aðferð
Sigtið 300 g af flórsykri og blandið við léttþeytta eggjahvítu. Hrært er í þar til blandan er þykk, rúllið í kúlur. Takið disk með eldhúspappír. Setjið 3 kúlur í einu á diskinn og bakið í örbylgjuofni á háum hita í 1½ mín. Eins og í töfrabragði blása kúlurnar út eins og blöðrur og verða að marengs.
Fullkomin samloka með þeyttum rjóma og nýjum íslenskum jarðarberjum.