Nánar um nýja tryggingu bænda
Allir félagsmenn Bændasamtaka Íslands á aldrinum 18–74 ára eru nú tryggðir með tímabundna afleysingu í allt að sex mánuði, verði þeir ófærir til starfa af völdum slyss eða sjúkdóms, samkvæmt nýjum samningi milli BÍ og Sjóvár.
Samningurinn tók gildi 1. apríl sl. Félagsmenn munu því framvegis leita til Sjóvár varðandi bætur en ekki til Velferðarsjóðs BÍ eins og áður. Sjóðurinn stendur straum af greiðslu iðgjalda fyrir hóptrygginguna sem og greiðslu á eigin áhættu.
Hér að neðan er að finna helstu upplýsingar um trygginguna. Starfsfólk BÍ getur veitt nánari upplýsingar en að öðru leyti skal leita til Sjóvár varðandi bætur og meðhöndlun tjóna.
Spurt og svarað um staðgengilstryggingu
- Hvað er staðgengilstrygging? Staðgengilstrygging greiðir kostnað við staðgengil eða aðkeypta þjónustu sem fellur til ef félagsmaður verður óvinnufær í a.m.k. þrjá mánuði af völdum veikinda eða slysa.
- Hverjir eru tryggðir í staðgengilstryggingu? Staðgengilstrygging nær yfir alla félagsmenn Bændasamtaka Íslands á aldrinum 18 til og með 74 ára.
- Hvað eru bætur staðgengilstryggingar háar og hvað eru þær greiddar lengi? Bætur geta orðið allt að 350.000 kr. á mánuði og eru greiddar í sex mánuði að hámarki, þó ekki fyrir fyrsta mánuð óvinnufærni.
- Hvað þarf óvinnufærni að vera mikil til að eiga rétt á bótum úr staðgengilstryggingu? Óvinnufærni þarf að vera 50% að lágmarki til að eiga rétt á bótum úr staðgengilstryggingu.
- Hvenær falla nýir félagsmenn Bændasamtakanna undir staðgengilstryggingu? Nýir félagsmenn eru tryggðir í staðgengilstryggingu eftir þrjá mánuði frá félagsaðild.
- Hvernig sæki ég um bætur? Félagsmenn tilkynna tjón til Sjóvár og þurfa að leggja fram gögn (kvittanir/reikninga) fyrir útlögðum kostnaði vegna afleysingarmanneskju eða aðkeyptrar þjónustu sem sérstaklega var stofnað til vegna óvinnufærni og eru viðbót við hefðbundinn kostnað við búreksturinn. Rafræn skilríki eru notuð til auðkenningar. Tjón eru tilkynnt á vef Sjóvár.