Ræktaðu garðinn þinn: Liljur, hreinleiki og fegurð
Vilmundur Hansen fjallar um liljur í nýjasta þætti af Ræktaðu garðinn þinn á Hlöðunni, hlaðvarpi Bændablaðsins.
Liljur eru fagurblómstrandi plöntur sem vaxa upp af laukum og tengjast þær menningu og mataræði þjóða víða um heim. Margar tegundir og hundruð yrkja eru í ræktun og sum þeirra dafna ágætlega hér á landi. Algengasta lilja í íslenskum görðum er eldlilja sem er appelsínugul og með dökkum dröfnum.
Hægt er að hlusta á þáttinn hér að neðan og í öllum helstu streymisveitum.