Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 11 mánaða.
Kolbeinn Óskar Bjarnason er yngsti bóndi landsins. Hann er með 220 kindur í fjárhúsum við þorpið á Reykhólum.
Kolbeinn Óskar Bjarnason er yngsti bóndi landsins. Hann er með 220 kindur í fjárhúsum við þorpið á Reykhólum.
Mynd / Aðsend
Fréttir 19. maí 2023

Yngsti bóndi landsins

Höfundur: Ástvaldur Lárusson

Kolbeinn Óskar Bjarnason, keypti í vor bústofn og fjárhús á Kötlulandi, sem er í útjaðri þorpsins á Reykhólum í Austur- Barðastrandarsýslu. Hann er fæddur í júlí 2005 og þar með enn 17 ára.

Aðspurður af hverju hann ákvað að fara í búskap, svarar Kolbeinn að hann sé mjög áhugasamur um landbúnaðarstörf. Sá sem var með búskapinn áður hafði hug á að hætta í lok vetrar og bauð Kolbeini búreksturinn til kaups. Fyrri bóndi á Kötlulandi er ekki tengdur Kolbeini fjölskylduböndum. „Hann var bara að leita að kaupanda og vissi að ég hafði áhuga,“ segir Kolbeinn.

Aðdragandinn að eigendaskiptunum var ekki langur, en það var ekki fyrr en seint í vetur sem viðræður milli Kolbeins og fyrri eiganda hófust fyrir alvöru. Ábyrgðin á búskapnum færðist í hendur Kolbeins fyrir einum og hálfum mánuði og segir hann allt hafa gengið vel síðan þá. Fyrstu ærnar bera í byrjun maí og ætlar Kolbeinn að nýta sumarfríið sitt til að sinna sauðburði. Þegar Bændablaðið heyrði í Kolbeini í síðustu viku var sauðburður ekki hafinn og enn nokkuð rólegt í búskapnum.

Kötlulandi fylgir ekki stór eignarjörð, en hann leigir 24 hektara af túnum frá hreppnum. Engar vélar fylgdu kaupunum, fyrir utan eina haugsugu. Hann segist fá mikla hjálp frá bæjunum í kring ef þörf er á vélavinnu. Bústofninn núna er 220 vetrarfóðraðar ær.

„Þetta er bara æðislegt – að geta gert eitthvað sjálfur,“ segir Kolbeinn aðspurður um hvernig nýfengið hlutverk leggist í hann. Kolbeinn er með nokkra reynslu af landbúnaðarstörfum, en hann hefur unnið sem vinnumaður í þrjú sumur á kúabúi í Landeyjum, ásamt því að hafa búið um tíma hjá frænda sínum sem rekur stórt sauðfjárbú.

Aðspurður um hvaða stefnu hann ætli að taka í búskapnum, segir Kolbeinn að hann vilji ná sem mestum fallþunga hjá lömbunum og fullnýta fjárhúsin. Hann segir byggingarnar bjóða upp á hátt í 400 vetrarfóðraðar ær. Meðfram búskap starfar hann í Þörungaverksmiðjunni á Reykhólum.

Sama sláturhús sektað þrisvar
Fréttir 17. maí 2024

Sama sláturhús sektað þrisvar

Matvælastofnun (MAST) hefur þrisvar sinnum á þessu ári lagt stjórnvaldssekt á sv...

KS hagnaðist um 5,5 milljarða króna
Fréttir 17. maí 2024

KS hagnaðist um 5,5 milljarða króna

Hagnaður Kaupfélags Skagfirðinga af rekstri félagsins á árinu 2023 reyndist rúml...

Vorverkum bænda seinkar
Fréttir 16. maí 2024

Vorverkum bænda seinkar

Veturinn sem leið var sá kaldasti frá vetrinum 1998 til 1999, samkvæmt tíðindum ...

Riðuveiki útrýmt innan 20 ára
Fréttir 16. maí 2024

Riðuveiki útrýmt innan 20 ára

Landsáætlun um riðuveikilaust Ísland hefur verið sett í samráðsgátt stjórnvalda.

Kornþurrkstöð reist í Eyjafirði
Fréttir 16. maí 2024

Kornþurrkstöð reist í Eyjafirði

Grunnur undir kornþurrkstöð í Eyjafirði er nú að taka á sig mynd í landi Laugala...

Mjólkurframleiðendur fá arðgreiðslu
Fréttir 16. maí 2024

Mjólkurframleiðendur fá arðgreiðslu

Kúabændur á starfssvæði Auðhumlu mega gera ráð fyrir arðgreiðslu frá samstæðunni...

Vetnisknúin skip í smíðum
Fréttir 15. maí 2024

Vetnisknúin skip í smíðum

Smíði er hafin á tveimur vetnis­ skipum á vegum Samskipa. Áætlað er að þeim verð...

Drómasýki í hrossum
Fréttir 13. maí 2024

Drómasýki í hrossum

Drómasýki er vaxandi vandamál í íslenskri hrossarækt. Til stendur að stofna star...