Garður
Foreldrar Soffíu keyptu jörðina 1973 og byggðu hana upp, en hún hafði þá verið í eyði í nokkur ár.
Árið 1997 fluttum við frá Reyðarfirði og tókum við búi af Björgvini og Margréti. Haustið 2014 tókum við í notkun 320 fm fjárhús, lögðum af gamalt hús í staðinn og fjölguðum við fénu aðeins með tilkomu þess.
Býli: Garður.
Staðsett í sveit: Þistilfjörður í Norður-Þingeyjarsýslu.
Ábúendur: Soffía Björgvinsdóttir og Jónas Pétur Bóasson.
Fjölskyldustærð (og gæludýra):
Við eigum þrjú börn, Björgvin Búa, 26 ára, í sambúð með Kristrúnu Sif Kristinsdóttur og eiga þau dóttur. Bóas Inga, 25 ára, í sambúð með Evu Björk Björnsdóttur og Margréti Brá, 17 ára, framhaldsskólanema. Páfagaukar eru tveir; Dissa og Konráð.
Stærð jarðar? 2.500 ha auk 4.000 ha sem óbyggðanefnd stal fyrir hönd íslenska ríkisins.
Gerð bús? Sauðfjárbú.
Fjöldi búfjár og tegundir? 540 kindur, 4 hross.
Hvernig gengur hefðbundinn vinnudagur fyrir sig á bænum?
Verkefnin eru árstíðabundin, gegningar á vetrum tvisvar á dag, sauðburður á vorin, heyskapur á sumrin, göngur og réttir að hausti. Girðingar og viðhald húsa þegar viðrar til verka.
Skemmtilegustu/leiðinlegustu bústörfin? Sauðburður og heyskapur í góðu veðri er alltaf skemmtilegur, öll verk verða óskemmtileg þegar illa gengur, t.d. vegna veðurs og bilana.
Hvernig sjáið þið búskapinn fyrir ykkur á jörðinni eftir fimm ár? Með svipuðu sniði og í dag.
Hvaða skoðun hafið þið á félagsmálum bænda? Pass. Vonandi tekst mönnum vel upp í komandi samningaviðræðum, fyrir hönd bænda, við gerð nýs búvörusamnings.
Hvernig mun íslenskum landbúnaði vegna í framtíðinni? Vonandi vel.
Hvar teljið þið að helstu tækifærin séu í útflutningi íslenskra búvara? Selja íslenskar landbúnaðarvörur sem lúxusvöru.
Hvað er alltaf til í ísskápnum? Mjólk, smjör, skyr og álegg (lambakjötið geymt í frysti).
Hver er vinsælasti maturinn á heimilinu? Kryddaðar bógsteikur frá Fjallalambi.
Eftirminnilegasta atvikið við bústörfin? Það varð þann 5.desember 2014, þegar fyrstu kindurnar voru hýstar í nýja fjárhúsinu.