Skammidalur 1 og 2
Jóhann Pálmason og Lára Oddsteinsdóttir keyptu Skammadal 2 og 45 prósenta hlut af Skammadal 1 af þeim bræðrum Guðgeiri og Árna Sigurðssonum í júní árið 2014 og fluttu þangað í lok desember það sama ár. Með í kaupunum fylgdu 7 kýr og 14 ær. Fyrir áttu þau um 40 kindur og nokkur hross.
Býli: Skammidalur 1 og 2.
Staðsett í sveit: Í Mýrdalshreppi, Vestur-Skaftafellssýslu.
Ábúendur: Jóhann Pálmason og Lára Oddsteinsdóttir
Fjölskyldustærð og gæludýr:
Saman eigum við synina Daða Stein, 8 ára og Andra Berg, 6 ára, fyrir átti Jóhann dótturina Hörpu Rún, 19 ára, sem býr á Suður-Fossi hér í sveit og Lára átti Þuríði Ingu, 18 ára og Sigurð Ásgrím, 15 ára, sem búa hér í Skammadal. Hundurinn á bænum heitir Skotta
Stærð jarðar? Ræktað land tæpir 30 ha, óræktað mýrlendi um 70 ha, auk þess óskipt heiðarlendi.
Gerð bús? Nautgripir, sauðfé og ferðaþjónusta.
Fjöldi búfjár og tegundir? Í dag eru nautin tæplega 80, rúmlega 100 kindur, 9 hross, 10 hænuungar og 1 hundur.
Hvernig gengur hefðbundinn vinnudagur fyrir sig á bænum?
Gegningar alla daga í fjósi og fjárhúsi þegar féð er á gjöf. Ferðaþjónustan er svo í miklum uppgangi hér í Mýrdalnum og njótum við góðs af því, svo henni þarf að sinna því eftir því sem bókanir segja til um. Við vinnum svo af og til eitthvað utan bús.
Skemmtilegustu/leiðinlegustu bústörfin? Okkur finnst öll bústörf vera skemmtileg.
Hvernig sjáið þið búskapinn fyrir ykkur á jörðinni eftir fimm ár? Svipað og í dag nema aðeins fleiri nautgripir, eftir að við höfum breytt fjósinu öllu í lausagöngu.
Hvaða skoðun hafið þið á félagsmálum bænda? Fylgjumst lítið með þeim og getum þar af leiðandi litla skoðun haft á þeim.
Hvernig mun íslenskum landbúnaði vegna í framtíðinni? Við teljum að honum muni vegna vel, ef passað verður áfram upp á heilnæmi og hreinleika afurða.
Hvar teljið þið að helstu tækifærin séu í útflutningi íslenskra búvara? Meiri og markvissari markaðssetning á heilnæmum afurðum, bæði nauta- og sauðfjárafurðum.
Hvað er alltaf til í ísskápnum? Mjólk, ostur, ab-mjólk og smjör.
Hver er vinsælasti maturinn á heimilinu? Sumir myndu vilja kjötsúpu í öll mál, aðrir pitsu, en húsbóndinn myndi aldrei velja fisk fengi hann matseðlinum ráðið.
Eftirminnilegasta atvikið við bústörfin? Ætli það sé ekki þegar við slepptum fénu okkar á nýja heimahaga haustið 2014 og fyrstu nautkálfarnir komu í fjósið. Annars var allt árið 2014 eftirminnilegt, þráláti draumurinn um búsetu í sveit rættist loksins.
Fjölskyldan við fermingu Sigurðar Ásgríms árið 2015.