Vaðbrekka
Langafi og -amma Aðalsteins Sigurðarsonar í Vaðbrekku keyptu jörðina árið 1922 og bjuggu hér í 50 ár. Svo tók afi hans við og svo pabbi hans og svo hann sjálfur frá árinu 2014.Hann er því fjórði ættliður sem býr þar.
Býli: Vaðbrekka.
Staðsett í sveit: Vaðbrekka stendur í 400 metra hæð yfir sjó í Hrafnkelsdal sem gengur suður úr Jökuldal ofanverðum á Fljótsdalshéraði.
Ábúendur: Eyrún Harpa Eyfells Eyjólfsdóttir.
Fjölskyldustærð (og gæludýra): Erum tvö og eigum von á barni í febrúar. Eigum einnig hundinn Dimmalimm.
Stærð jarðar? Jörðin er eitthvað um 6.600 hektarar.
Gerð bús? Sauðfjárbú.
Fjöldi búfjár og tegundir? Eingöngu sauðfé, 405 hausar.
Hvernig gengur hefðbundinn vinnudagur fyrir sig á bænum? Þetta er alveg einkennileg spurning því hefðbundinn vinnudagur er ekki til, en hann byrjar snemma og endar seint.
Skemmtilegustu/leiðinlegustu bústörfin? Sauðburður og smalamennskur eru skemmtilegust og skítmokstur það leiðinlegasta.
Hvernig sjáið þið búskapinn fyrir ykkur á jörðinni eftir fimm ár? Sjáum þetta fyrir okkur í svipuðum sniðum og þetta er núna í; kringum 400 kindur og hefðbundinn sauðfjárbúskapur.
Hvaða skoðun hafið þið á félagsmálum bænda? Betur má ef duga skal.
Hvernig mun íslenskum landbúnaði vegna í framtíðinni? Vonandi vel.
Hvar teljið þið að helstu tækifærin séu í útflutningi íslenskra búvara? Held að helstu tækifærin felist í því að selja búvörur á minni kjötkaupmenn um allan heim, til að ná til fleira fólks sem vill kaupa dýrara kjöt af kjötkaupmanninum á horninu.
Hvað er alltaf til í ísskápnum? Mjólk, smjör, ostur og meira smjör.
Hver er vinsælasti maturinn á heimilinu? Heimareykt bjúgu með smjöri.
Eftirminnilegasta atvikið við bústörfin? Mjög eftirminnilegt að geta hafið heyskap um miðjan júlí í sumar, sem er tveimur vikum fyrr en í venjulegu árferði.