Alvöru hetja!
Hann Gunnar Ingi er hress og kröftugur strákur sem stefnir á sjómennsku í framtíðinni.
Nafn: Gunnar Ingi Sigurðsson.
Aldur: 8 ára en verð 9 ára á árinu.
Stjörnumerki: Meyja.
Búseta: Keldunúpur/Sauðárkrókur.
Skóli: Kirkjubæjarskóli á Síðu.
Skemmtilegast í skólanum: Smíði.
Áhugamál: Skip, fótbolti, körfubolti og sveitastörf.
Tómstundaiðkun: Æfi fótbolta og píanó.
Uppáhaldsdýrið: Hestur og hundur.
Uppáhaldsmatur: Fiskur í raspi og hamborgari.
Uppáhaldslag: Tarantúla með Úlfurúlfur.
Uppáhaldslitur: Blár.
Uppáhaldsmynd: Harry Potter.
Fyrsta minningin: Þegar við afi Gunnar fórum með Málmey í slipp á Akureyri.
Hvað er það skemmtilegasta sem þú hefur gert: Fara út á sjó.
Hvað langar þig að verða þegar þú verður stór: Sjómaður.
Við hvetjum sem flesta til að hafa samband ef ykkur langar að vera með! sigrunpeturs@bondi.is