Finnst gaman að teikna
Svandís Ósk er hress og kát ung stúlka sem þykir skemmtilegast að hitta ættingjana í Danmörku.
Nafn: Svandís Ósk Svansdóttir.
Aldur: 12 ára.
Stjörnumerki: Naut.
Búseta: Kjós Hvalfirði.
Skóli: Klébergsskóli.
Skemmtilegast í skólanum: Íþróttir.
Áhugamál: Spila tölvuleiki og teikna.
Tómstundaiðkun: Engin eins og er.
Uppáhaldsdýrið: Hundur.
Uppáhaldsmatur: Sviðasulta pabba, pasta og pitsa.
Uppáhaldslag: Another love með Tom Odell.
Uppáhaldslitur: Fjólublár.
Uppáhaldsmynd: Friends þættirnir.
Fyrsta minningin: Þegar ég veiddi minn fyrsta fisk 4 ára.
Hvað er það skemmtilegasta sem þú hefur gert: Að hitta ömmu og ættingja í Danmörku.
Hvað langar þig að verða þegar þú verður stór: Vinna með börnum.
Við hvetjum sem flesta til að hafa samband ef ykkur langar að vera með! sigrunpeturs@bondi.is