Pönnukökur & beikon best!
Hún Katrín Eva er hress og lífsglöð stelpa sem býr með fjölskyldunni sinni í Svíþjóð.
Nafn: Katrín Eva Pétursdóttir.
Aldur: 9 ára, alveg að verða 10 ára.
Stjörnumerki: Fiskur.
Búseta: Bý í Stokkhólmi, höfuðborg Svíþjóðar.
Skóli: Örbyskolan.
Skemmtilegast að gera: Sauma og leika með dúkkur og hestadót.
Uppáhaldsdýr: Hestar.
Uppáhaldsmatur: Pönnukökur og beikon.
Uppáhaldslag: „Shallow“ úr myndinni „Star is Born“.
Uppáhalds bíómynd/sjónvarpsefni: Sænska fjölskyldan og Home Alone.
Æfirðu íþróttir eða spilarðu á hljóðfæri: Æfi dans og er í skátunum.
Hvað ætlar þú að verða þegar þú verður stór: Íslenskukennari fyrir íslensk börn í útlöndum, leikskólakennari eða grunnskólakennari.
Mest spennandi sem þú hefur gert: Útilega á Íslandi.
Minnisstæðast frá liðnu sumri: Húsbílaferðalag um Svíþjóð, Danmörku og Þýskaland.