Mjólkuriðnaður á tímamótum
Í jólablaðinu árið 2003 er á forsíðu greint frá ráðstefnu á Akureyri undir yfirskriftinni Mjólkuriðnaður á tímamótum.
Á ráðstefnunni var fjallað um framtíð mjólkurframleiðslu og mjólkurvinnslu og leitað svara við því hvort
skynsamlegt væri fyrir mjólkuriðnaðinn í landinu að sameinast í eitt fyrirtæki eða hvort farsælla væri að hér yrðu áfram rekin tvö eða fleiri sjálfstæð fyrirtæki.
Það má skoða gömul tölublöð og árganga Bændablaðsins á vefnum timarit.is.