Obbosí – eldgos
Halaleikhópurinn er leikhópur fatlaðra og ófatlaðra sem hafa leikið og stýrt leikfélaginu jöfnum höndum í nú þrjátíu ár.
Halaleikhópurinn, sem heldur um þessar mundir, upp á 30 ára afmæli sitt, frumsýnir af því tilefni verkið Obbosí – eldgos, sem er sérstaklega skrifað fyrir hópinn. Alls níu leikarar stíga á svið í verkinu sem skrifað er og leikstýrt af Sigrúnu Valbergsdóttur.
Við fáum að kynnast lífrænt vottaða sveitabænum Snotrustöðum. Þar er boðið upp á bændagistingu og ýmsa óvenjulega afþreyingu – en sögusviðið gefur til kynna glaum og glens með tengingu við hið yfirskilvitlega.
Heimasætan hún Fjóla fær þá snjöllu hugmynd að glæða ferðamannastrauminn með því að auglýsa í Bændablaðinu og býður tilvonandi gestum upp á góðan afslátt af gistingu og mat ef þeir á móti veita þjónustu sína á einhvern hátt.
Bærinn stendur á virku eldgosabelti og um sama leyti og allt fyllist af gestum fer að gjósa í nágrenninu auk þess sem þrjár kýr bera á sama sólarhringnum.
Fjóla á fullt í fangi með þetta allt saman og einn misskilningur rekur annan í sambandi við dvöl gestanna á bænum. Til viðbótar ráða almannavarnir og náttúruvársérfræðingar auðvitað ekki við eitt né neitt.
Þessi ótrúlega atburðarás á sér öll á einn eða annan hátt fyrirmynd í raunveruleikanum og sjón er sögu ríkari.
Frumsýning er 10. febrúar, miða er hægt að nálgast í síma 897 5007 eða á netfanginu midi@halaleikhopurinn.is og miðaverð er 3.000 kr.
Sýnt er í Halanum, leikhúsi Halaleikhússins í Sjálfsbjargarhúsinu að Hátúni 12.
Gengið er inn að norðanverðu nr. 3 og sýnt er um helgar, laugardaga og sunnudaga, kl. 17