Cletrac – saumavél þróast í traktor
Árið 1866 settu Thomas H. White og synir á laggirnar litla verksmiðju til að framleiða saumavélar. Fyrirtækið gekk vel og feðgarnir færðu út kvíarnar og hófu framleiðslu á hjólaskautum og reiðhjólum.
Synirnir, sem hétu Rollin og Clarence, hófu svo framleiðslu á landbúnaðartækjum árið 1912. Bræðranna fyrsta verk var að stofna nýtt fyrirtæki sem fékk nafnið Cleveland Motor Company og undir því nafni hófu þeir framleiðslu á vélknúnum plógi. Plógurinn þótti frábærlega vel hannaður.
Snemma árs 1914 stungu bræðurnir af til Havaí-eyja þar sem þeir hönnuðu og smíðuðu frumgerðina að lítilli beltadráttarvél sem var prufukeyrð á ananasökrunum þar. Framleiðsla traktorsins hófst 1916 eftir að þeir höfðu aflað sér ýmissa einkaleyfa.
Beltavélar fyrir minni býli
Fyrstu árin framleiddu þeir eingöngu litlar, 12 til 20 hestafla, beltavélar sem ætlaðar voru minni býlum og hugsaðar þannig að hægt væri að keyra þær milli raða á kornökrum. Eða eins og sagði í auglýsingabæklingi fyrir Model F týpuna; „loksins er kominn á markaðinn traktor sem kemur í staðinn fyrir hesta og asna á verði sem venjulegir bændur ráða við.“ Til að sýna hversu einfalt væri að stjórna Model F týpunni fylgdi með mynd af ellefu ára dreng að keyra vélina.
Árið 1926 setti fyrirtækið á markað beltavélar með nýja gerð af stýrisbúnaði sem var ólíkur öllum öðrum slíkum búnaði sem áður hafði sést. Búnaðurinn gerði ökumanninum kleift að hægja á öðru hvoru belti fyrir sig og þannig taka stærri beygjur. Búnaður annarra beltavéla á þessum tíma var þannig að vildu menn taka beygju urðu þeir að stöðva annað hvort belti og taka mjög skarpar beygjur.
Árið 1933 hófst framleiðsla á 100 hestafla beltatraktor með dísilvél sem hugsaður var til vegagerðar og fyrir stærri býli.
Bræðurnir reyndu einnig fyrir sér með hönnun á traktor á hjólum en sú framleiðsla náði aldrei neinu flugi og aðeins fáir slíkir fóru í sölu.
Hallar undan fæti
Í seinni heimsstyrjöldinni framleiddi fyrirtækið hraðskreiða beltatraktora fyrir Bandaríkjaher.
Rekstur Cleveland Motor Company gekk illa á stríðsárunum og 1944 tók framleiðandi Oliver-dráttarvéla reksturinn yfir og um tíma var fyrirtækið rekið undir nafninu Oliver-Cletrac.
Árið 1962 keypti White Motor Company öll hlutabréf í Oliver’s Cleveland Crawler Tractor Company. Segja má að Cletrac hafi þannig verið komið í hendur upphaflegra eigenda sinna því fjölskylda saumavélaframleiðandans Thomas H. White stofnaði upphaflega White Motor Company.
Framleiðslu Cletrac beltavélanna var hætt árið 1965 en þá höfðu 75 mismunandi gerðir þeirra verið settar á markað.