Graham Bradley–framúrstefnuhönnun
Fjármálakreppan sem herjaði á Vesturlandabúa á fjórða áratug síðustu aldar hafði gríðarleg áhrif í miðríkjum Bandaríkjanna. Þrátt fyrir að bændur þar hefðu flestir til hnífs og skeiðar var fjárhagsstaða þeirra í bullandi mínus og margir misstu jarðnæði sitt í skuldafen banka og fjármálastofnana.
Framleiðendur landbúnaðartækja fundu einnig fyrir samdrættinum og mörg fyrirtæki sem staðið höfðu ágætlega fóru hratt og örugglega á hliðina. Undir lok kreppunnar settu eigendur Graham-Paige Motors Corporation í Detroit í Michigan-ríki í Bandaríkjunum á markað sína fyrstu dráttarvél. Traktorinn sem kallaðist Graham-Bradley 503 var hugvitssamlega hannaður og von framleiðendana að hann mundi reisa fjárhag fyrirtækisins við þegar fjármálakerfið rétti úr kútnum.
Framleiðsla á bílum
Aðkoma fyrirtækisins, sem hét upphaflega Graham Brothers, að vélaframleiðslu hófst árið 1927 þegar það yfirtók bifreiðaframleiðandann Paige-Detroit Motor Car Company. Með kaupunum ætlaði fyrirtækið sér stóran sess í sívaxandi bifreiðaframleiðslu en fyrir þann tíma hafði það hagnast vel á framleiðslu á gleri og glerflöskum.
Framleiðsla á bílum gekk vel fyrstu árin en eftir að kreppan skall á fór að halla verulega undan fæti.
Fyrsti traktorinn
Hönnun á Graham-Bradley traktorum hófst 1937 og fyrsta vélin var sett á markað ári síðar. 1939 sá uppfærð týpa af Graham-Bradley 503, Model 104, dagsins ljós. Kramið í vélunum var svipað en nýja týpan náði meiri hraða og allt að 30 kílómetrum á klukkustund á góðum vegi og þótti mikil spíttkerra á þeim tíma.
Hönnun Graham-Bradley var straumlínulaga og einkennislitur þeirra hárauður. Húddið var óvenjulegt og framan á því áberandi bogalagað grill sem gaf traktornum fútúrískt útlit.
Graham-Bradley dráttarvélarnar voru frá upphafi á gúmmíhjólum og hjólabreidd þeirra auðstillanleg. Mótorinn var af gerðinni Continenta, 217 kúbik og rétt rúmlega 25 hestöfl.
Ágæt sala
Sala á dráttarvélunum var ágæt þrátt fyrir að fyrirtækið væri með fáa sölu- og þjónustuaðila á sínum snærum og auglýsti þær aðallega til sölu í Sears- og Roebuck innkaupalistum sem sendir voru á bændabýli í miðríkjum Bandaríkjanna.
Um tíma voru framleiddir Graham-Bradley leikfangatraktorar úr harðplasti sem fyrirtækið sendi bændasonum í jólagjöf og voru seldir í gegnum póstverslanir.
Árið 1938 sendi fyrirtækið frá sér yfirlýsingu þess eðlis að stórauka ætti dráttarvélaframleiðslu þess og að tíu þúsund slíkir yrðu settir á markað næstu fimm árin. Ekkert varð af þeim áformum.
Framleiðslu Graham-Bradley dráttarvéla var hætt 1940 og fyrirtækið sneri sér að framleiðslu stríðstóla fyrir bandaríska sjó- og loftherinn.
Draumurinn um Frazer
Sex árum síðar, 1946, stóð til að fyrirtækið reyndi aftur fyrir sér á dráttarvélamarkaði með traktor sem kallaðist Frazer.
Hugmyndin að baki Frazer dráttarvélunum var stór og til stóð að framleiða fjölda fylgihluta eins og jarð- og heyvinnslutæki sérstaklega fyrir þær vélar. Frazerinn reyndist pípudraumur og hætt var við áformin áður en framleiðslan hófst.
Fyrirtækið hætti öllum afskiptum af vélaframleiðslu á miðjum fimmta áratug síðustu aldar og sneri sér að fasteignaviðskiptum með góðum árangri. Það átti meðal annarra eigna íþrótta- og tónleikahöllina Madison Square Garden í New York um tíma.