Grasagarður Al Capone?
Um 40 km frá miðborg Chicago má finna þennan veglega grasagarð sem stofnaður var árið 1972. Því miður var Al Capone þá löngu látinn, svo hann náði ekki að heimsækja þennan fínan garð á sínum heimaslóðum. Það mætti næstum því kalla þetta vatnsgarð, því vatn spilar hér svo stórt hlutverk.
Kristján "Capone" Friðbertsson.
Garðurinn er í raun samansafn 2,5 milljón plantna í 27 görðum sem dreifast yfir níu eyjar á rúmum 150 hekturum undir þessu nafni. Aðgangur að garðinum er frír og hér er opið allt árið.
Samstarf garðsins við menntastofnanir er mikið en einnig er áhersla á að fræða gestina og sést það víða um garðinn. Einn hluti er t.d. tekinn undir ræktun ávaxta og grænmetis og er hægt að kynna sér ræktunaraðferðir og möguleika varðandi vaxtarmótun og fleira gagnlegt þar. Þessi nálgun er um margt aðdáunarverð, að geta miðlað reynslu og þekkingu með þessum skýra hætti til forvitinna gesta.
Lágvaxinn en langur gosbrunnur brýtur upp göngusvæði milli tveggja garða.
Matvælaræktun
Einstaklingur sem veltir fyrir sér að hefja ræktun á grænmeti eða ávöxtum í eigin garði getur heimsótt þann hluta grasagarðsins, rölt um svæðið og velt fyrir sér hvaða nytjajurtir henta best. Þarna fær viðkomandi t.d. upplýsingar um hvaða ávaxtayrki hafa reynst vel í nágrenninu um langa hríð, sem og hvaða rótarstofnar gætu verið heppilegastir. Þetta getur oft reynst mun betur en að treysta sölumanni með stóran lager af plöntum sem eru jafnvel óheppilegar fyrir þennan einstakling. Hvernig á svo að stýra vexti til að hámarka nytjar, nýta sem best plássið sem þú hefur, verjast óværum, velja saman ólíkar tegundir?
Eplatré vaxtarstýrt sem veggtré eftir „espalier“ forminu.
Þarna má einnig finna svæði sem veitir almennt hugmyndir og ráð varðandi ræktun plantna á óhentugum svæðum eða jafnvel án eiginlegs garðs. Enn fremur ábendingar varðandi hin ýmsu áhöld, umhverfismál og náttúruna almennt. Skilti sem veita ekki bara upplýsingar um plöntur, heldur einnig heppilegar samsetningar í görðum, hugmyndir um litapalettur, áferð o.fl.
Samsett mynd af vatnaliljum, sem sýnir þær jafnt blómstrandi sem og með knúpa, ásamt því að sýna vatnaliljublöð (diska) sem hafa opnast sem og eitt sem á eftir að opnast.
Dæmi um upplýsingaskilti sem hjálpar til með litaval í garðinum situr t.d. við blöndu rauðfjólublárrar dahliu, lime litaðrar Iresine herbstii, fjólubláa ilmexir (agastache) og gult flauelsblóm. Skiltin skýra þá m.a. af hverju þessi samsetning lita og áferða gæti verið heppileg í garðinum. Hér er yfirhöfuð mjög áberandi áhersla á að veita almenningi víðfeðma fræðslu, með praktíska nálgun.
Á vatnalilju blómknúp, drekafluga lenti. Ljósmyndunar happ mig henti.
Skýjasnyrting er ekki bara flugvélaklósett
Svo margir hlutar þessa garðs eru jafnt áhugaverðir sem og fallegir að heimsækja. Mig langar að nefna sérlega fallega Japansgarðinn þeirra. Indælt að rölta um í rólegheitunum, skoða, njóta og láta hugann reika. Þar má finna mörg dæmi um það sem nefnist á ensku „cloud pruning“, trjáformun sem gæti þá útlagst á íslensku sem „skýjasnyrting“. Aðferð sem sumir vilja meina að gangi frekar út á að finna innri sál trjáplöntunnar en að fjarlægja dauðar greinar. Skýjasnyrting er oft notuð til að láta tré líta út eldri, eða hið minnsta að þau virðist hafa átt mun áhugaverðara líf en þau hafa í raun átt, jafnvel með áherslu á óvenjulegan greinavöxt.
Samsett mynd af útsýni að eyjum Japansgarðs og öðru vatni sem skilur að eyjar grasagarðsins.
Á þessum slóðum er einnig gott að íhuga heimsókn í Morton trjásafnið (e. arboretum) sem spannar um sjö km2 af fallegri náttúru, ekki svo fjarri garðinum.
https://www.chicagobotanic.org/
http://www.mortonarb.org/