Hvanneyrarbúið styrkir stöðu sína
Höfundur: BHB
Aðalfundur Hvanneyrarbúsins ehf. var haldinn þann 27. ágúst sl. Í stjórn félagsins á síðasta starfsári voru Baldur Helgi Benjamínsson, búfjárerfðafræðingur og bóndi á Ytri-Tjörnum í Eyjafirði, formaður, Ólöf Ósk Guðmundsdóttir, námsbrautarstjóri búfræðibrautar skólans og Pétur Diðriksson, bóndi á Helgavatni í Þverárhlíð. Bústjóri er Egill Gunnarsson og fjósameistari er Hafþór Finnbogason.
Fundargerðir stjórnarfunda, ársreikningar og skýrslur stjórnar eru birtar á heimasíðu Landbúnaðarháskólans, lbhi.is.
Afurðir og mjólkurgæði í fremstu röð
Tilgangur félagsins er að reka á hagkvæman hátt kúabú á Hvanneyri í þágu kennslu og rannsóknastarfs Landbúnaðarháskóla Íslands. Innlögð mjólk árið 2018 var 544.883 lítrar með 4,01% fitu og 3,26% próteini, mfm líftölu var 14 og mfm frumutölu 123. Hlutfall fitu og próteins hækkaði nokkuð frá fyrra ári, en líftala og frumutala lækkuðu frá árinu á undan, þannig að heilt yfir er þróun mjólkurgæða mjög jákvæð. Árskýr á búinu voru 72,2 (73,1) sem að meðaltali skiluðu 8.289 (8.180) kg mjólkur, með 4,06% fitu (3,79%) og 3,32% próteini (3,23%). Búið er hið 4. afurðahæsta á landinu, mælt í kg mjólkur/árskú. Tún, engjar og grænfóðurakrar eru um 170 ha.
Stöðugur rekstur
Rekstur félagsins gekk með ágætum á árinu 2018 og var hann í samræmi við þær áætlanir sem stjórnendur félagsins lögðu upp með. Heildartekur félagsins voru 87,1 m.kr og hagnaður félagsins á árinu eftir fjármagnsliði var 5 m.kr. Áætlun yfirstandandi árs gerir ráð fyrir tekjuafgangi þannig að halda megi áfram að byggja upp eigið fé félagsins, búa í haginn fyrir nauðsynlega endurnýjun á tækjum, búnaði og ræktun, ásamt því að efla fjárhagslegan styrk Hvanneyrarbúsins. Eigið fé félagsins jókst um rúmlega 5 milljónir kr á árinu og nemur það nú 26,6 m.kr. Eiginfjárstaða félagsins hefur rúmlega tvöfaldast frá því að rekstur félagsins var færður í núverandi horf árið 2015, eins og sjá má á myndunum hér að neðan.
Helstu fjárfestingar félagsins á liðnu ári voru nýjar sláttuvélar, bæði fram- og afturvél og frambúnaður á aðaldráttarvél búsins, MF5613. Auk þess var keypt notuð hliðarrakstrarvél. Eldri vélar voru ýmist seldar eða settar upp í þær nýju. Þá var umtalsverðum fjármunum varið til viðhalds á ræktun og framræslu.
Óplægður rannsóknaakur
Frá síðasta aðalfundi hafa orðið þau þáttaskil í rekstrinum að uppgjöri við fyrrverandi bústjóra er að fullu lokið. Stjórn leggur áherslu á að nýta það fjárhagslega svigrúm sem myndast við það í þágu áframhaldandi uppbyggingar á aðstöðu og búnaði.
Fyrir liggur að nauðsynlegt er að gera ýmsar breytingar á Hvanneyrarfjósinu ef í því á að vera mögulegt að framkvæma einstaklingsfóðrunartilraunir á nautgripum. Þegar er farið að huga að því með hvaða hætti sú endurnýjun skuli gerð. Til að mynda þrengdi einföld rannsókn á fóðrun ungkálfa mjög að núverandi búrekstri. Þá er mjög stór rannsóknaakur varðandi umhverfisáhrif nautgriparæktar óplægður.
Í nýrri skýrslu RML um hagrænt vægi eiginleika í nautgriparækt kemur fram að handbær gögn um launakostnað í mjólkurframleiðslu eru mjög takmörkuð. Með skipulegri og handhægri skráningu vinnutíma starfsmanna Hvanneyrarbúsins, væri mögulegt að gera þar nokkra bragarbót á.
Horft til framtíðar
Í nýútkominni stefnu Landbúnaðarháskólans 2019-2024 er lögð áhersla á að „tryggja fyrirmyndar búrekstur sem er leiðandi í sjálfbærni, umhverfisvernd og tækniþróun“.
Að mati stjórnar Hvanneyrarbúsins er núverandi búrekstur til mikillar fyrirmyndar á flesta mælikvarða. Til að hann verði leiðandi á landsvísu varðandi fyrrnefnd atriði þarf að ráðast í ýmsar framkvæmdir og fjárfestingar; plastnotkun er t.d. hægt að minnka gríðarlega. Öflugri rannsóknir í jarðrækt með bættri aðstöðu og auknum mannafla væru vel til þess fallnar að auka sjálfbærni í fóðuröflun búsins.
Nýr mykjutankur hefur stórbætt nýtingu næringarefna í búfjáráburði, svo dæmi séu tekin. Sú fjárfesting er mikilvægt framlag til umhverfismála. Aukin sjálfbærni í orkuöflun búsins er einnig atriði sem vert er að gefa gaum.
Stjórn Hvanneyrarbúsins ehf. þakkar starfsmönnum fyrir samstarfið á árinu og óskar þeim til hamingju með góðan árangur í búrekstrinum. Starfsmönnum skólans er jafnframt þakkað fyrir samstarfið. Á aðalfundi 2019 urðu þær breytingar að Ragnheiður Inga Þórarinsdóttir rektor tók við stjórnarformennsku í félaginu en Baldur og Pétur sitja áfram með henni í stjórn þess.