Kvígur frá NautÍs
Uppbygging hreinræktaðrar Angus-hjarðar hjá Nautgriparæktarmiðstöð Íslands á Stóra-Ármóti hefur gengið vel á undanförnum árum og stöðin því aflögufær með kvígur.
Á þessu ári eru boðnar til kaups þrjár hreinræktaðar Angus-kvígur. Hér á eftir fer örstutt kynning á þeim kvígum sem standa til boða núna. Kvígurnar voru dæmdar af þeim Ditte Clausen og Lindu Margréti Gunnarsdóttur hjá RML. Varðandi lýsingar þessara gripa er mikilvægt að hafa í huga að hér er um mun holdfylltari gripi að ræða en við eigum að venjast hérlendis.
Kvígurnar eru dætur Laurens av Krogedal NO74075 og móðurfeðurnir eru Jens av Grani NO74061 og Li‘s Great Tigre NO74039. Þetta eru naut sem eru þekkt að því að gefa góðar kýr til undaneldis, bæði hvað varðar burð og aðra mæðraeiginleika.
List 1662742-0066
Fædd 24. apríl 2023 á Nautgriparæktarmiðstöð Íslands á Stóra-Ármóti.
Ætt:
F. Laurens av Krogedal NO74075
M. Jata IS1662742-0043
Ff. Horgen Erie NO74029
Mf. Jens av Grani NO74061
Fm. 1879 av Krogedal NO31897
Mm. Systa-ET IS1662742-0014
Fff. Horgen Bror NO55754
Mff. AUHIOE8 Ayrvale Bartel E8
Ffm. Horgen Soria NO27377
Mfm. Evy av Grani NO30798
Fmf. Dole av Krogedal NO58361
Mmf. Li‘s Great Tigre NO74039
Fmm. 5207 av Krogedal NO25207
Mmm. Letti av Nordstu NO100514
Lýsing: Af Aberdeen Angus kyni. Svört, kollótt. Meðalstór, boldjúp og útlögumikil kvíga með góðar malir og djúpan og mikinn lærvöðva. Góð fótstaða og klaufir. Falleg kvíga.
Umsögn: Fæðingarþungi var 31 kg. Við vigtun 7. maí 2024 vó List 416 kg og hafði því vaxið um 1.016 g/dag frá fæðingu.
Ómvöðvi: 63,0 mm, ómfita: 7,51 mm.
Staða: Ófengin.
Lykkja 1662742-0076
Fædd 25. maí 2023 á Nautgriparæktarmiðstöð Íslands á Stóra-Ármóti.
Ætt:
F. Laurens av Krogedal NO74075
M. Silla-ET IS1662742-0005
Ff. Horgen Erie NO74029
Mf. Li‘s Great Tigre NO74039
Fm. 1879 av Krogedal NO31897
Mm. Lara av Høystad NO49943
Fff. Horgen Bror NO55754
Mff. CA1469322 HF El Tigre 28U
Ffm. Horgen Soria NO27377
Mfm. Else fra Li NO30822
Fmf. Dole av Krogedal NO58361
Mmf. Ivar fra Li NO74047
Fmm. 5207 av Krogedal NO25207
Mmm. Helle av Høystad NO34418
Lýsing: Af Aberdeen Angus kyni. Svört, kollótt. Meðalstór, fremur boldjúp, útlögumikil og vel gerð kvíga. Góður frampartur og langar malir. Læraholdin góð, mikill og nokkuð djúpur lærvöðvi. Góð og sterkleg fótstaða, eilítið náin að aftan. Falleg kvíga.
Umsögn: Fæðingarþungi var 39 kg. Við vigtun 7. maí 2024 vó Lykkja 400 kg og hafði því vaxið um 1.037 g/dag frá fæðingu.
Ómvöðvi: 62,3 mm, ómfita: 5,09 mm.
Staða: Ófengin.
Lóa 1662742-0077
Fædd 25. maí 2023 á Nautgriparæktarmiðstöð Íslands á Stóra-Ármóti.
Ætt:
F. Laurens av Krogedal NO74075
M. Systa-ET IS1662742-0014
Ff. Horgen Erie NO74029
Mf. Li‘s Great Tigre NO74039
Fm. 1879 av Krogedal NO31897
Mm. Letti av Nordstu NO100514
Fff. Horgen Bror NO55754
Mff. CA1469322 HF El Tigre 28U
Ffm. Horgen Soria NO27377
Mfm. Else fra Li NO30822
Fmf. Dole av Krogedal NO58361
Mmf. Dunder av Bognes NO74025
Fmm. 5207 av Krogedal NO25207
Mmm. Janne av Nordstu NO39302
Lýsing: Af Aberdeen Angus kyni. Svört, kollótt. Meðalstór, boldjúp og útlögumikil kvíga með góðan frampart. Lærahold eru sérlega góð og mikil með mikla fyllingu og djúpan vöðva. Góð fótstaða og klaufir. Falleg kvíga.
Umsögn: Fæðingarþungi var 37 kg. Við vigtun 7. maí 2024 vó Lykkja 401 kg og hafði því vaxið um 1.046 g/dag frá fæðingu.
Ómvöðvi: 56,1 mm, ómfita: 8,71 mm.
Staða: Ófengin.