Square Turn-traktorinn
Square Turn dráttarvélarnar þóttu byltingarkenndar á sínum tíma enda einstakir traktorar sem áttu sér enga líka. Dráttarvélin var gríðarstór á síns tíma mælikvarða og með rúmlega tveggja metra bili milli stórra járnhjólanna.
Hugmyndafræðingarnir á bakvið og hönnuðir Square Turn dráttarvélanna voru báðir frá Nebraska-ríki í Bandaríkjum Norður-Ameríku sem hétu A.T. Kenney og A.J. Colwell.
Kenney var bóndi og Colwell yfirmaður byggingaframkvæmda hjá járnbrautafyrirtæki áður en þeir sneru sér að hönnun og framleiðslu dráttarvéla. Colwell sá um lausn tæknimála í samstarfinu en Kenney var með landbúnaðarreynsluna.
Á punktinum
Sagan segir að tvíeykið hafi smíðað frumtýpu Square Turn dráttarvélarinnar í þröngri og hrörlegri skemmu. Hugmyndin var meðal annars að snúningspunktur traktorsins yrði eins lítill og hægt væri og að vélin bæri plóg undir sér en væri ekki með hann í eftirdragi. Kenney og Colwell tókst ætlunarverk sitt því Square Turn dráttarvélin gat í orðsins fyllstu merkingu snúið við á punktinum.
Framleiðslan fór hægt af stað en tekið var við fyrstu pöntunum árið 1914 og fyrsta vélin afhent sama ár.
Stór og öflugur vinnuhestur
Drif dráttarvélarinnar gerði það að verkum að hægt var að vinna með vélina í tvær áttir, aftur á bak og áfram, að jöfnu. Eina sem þurfti að gera var að færa ökumannssætið hinum megin við miðlægt stýrið og skipta um drif.
Í auglýsingu um traktorinn sagði að hann væri svo byltingarkenndur að hönnun hans og smíð félli undir átta einkaleyfi og að með honum afkastaði einn maður á við átta menn með átta hesta með átta plóga í eftirdragi. Einnig var sagt að hann væri einstaklega auðveldur í notkun og að viðhaldið væri lítið sem ekkert.
Square Turn var með 510 rúmsentímetra og fjögurra strokka vél af gerðinni Climax. Dráttargetan var sögð 18 hestöfl sem gerði traktorinn að einni öflugustu dráttarvélum síns tíma. Vélin gekk hvort sem var fyrir steinolíu eða gasi. Auk plógsins sem fylgdi traktornum mátti tengja hann og láta knýja sem dæmi þreskivélar og sögunarmyllur.
Eigendaskipti
Þrátt fyrir að Square turn dráttarvélunum hafi verið vel tekið höfðu Kenney og Colwell ekki fjárhagslegt bolmagn til að anna eftirspurn. Tveimur árum eftir sölu fyrsta traktorsins neyddust þeir til að selja einkaleyfi sín og framleiðsluna til Albaugh-Dover Co. í Chicago.
Nýir eigendur voru stórhuga. Hlutafé var stóraukið og gerð var áætlun um framleiðslu á 2000 vélum á næstu fjórum árum.
Þátttaka Bandaríkjanna í fyrri heimsstyrjöldinni leiddi af sér skömmtun á hráefni, meðal annars stáli, og það reyndist framleiðanda Square Turn dráttarvélanna erfiður biti að kyngja. Í kjölfarið dróst framleiðsla vélanna verulega saman og fjöldi pantana var dreginn til baka.
Framhaldið var fyrirtækinu erfitt og það framleiddi einungis 50 dráttarvélar árið 1921 og var lýst gjaldþrota 1925.